Markahæstur eina ferðina enn

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk í kvöld.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk í kvöld. mbl.is/Óttar Geirsson

Óðinn Þór Ríkharðsson landsliðsmaður í handknattleik varð einu sinni sem oftar markahæstur hjá Kadetten í kvöld þegar liðið vann Amicitia Zürich, 26:22, í viðureign Íslendingaliðanna í svissnesku A-deildinni.

Reyndar mættust íslensku landsliðsmennirnir ekki því Ólafur Guðmundsson lék ekki með Amicitia vegna meiðsla. Óðinn varð hins vegar markahæstur í liði Kadetten með sex mörk.

Kadetten, undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar, er í öðru sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Kriens, þegar tveir leikir eru eftir af deildarkeppninni. Fram undan eru síðan átta liða úrslit um svissneska meistaratitilinn. Amicitia er í fjórða sæti, tólf stigum á eftir Kadetten.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert