„Snúast að mestu leyti um að bera virðingu fyrir lífinu“ Stefán Árni Pálsson skrifar 29. október 2020 15:31 Ásgeir Kolbeinsson er mikill sérfræðingur um kvikmyndir.
Athafnamaðurinn og sjónvarpsmaðurinn, Ásgeir Kolbeinsson, hefur gert ýmislegt í gegnum tíðina en hann er ef til vill þekktastur fyrir kvikmyndaþáttinn Sjáðu sem hefur verið í sýningu á Stöð 2 undanfarin ár. Ásgeir mætti í hlaðvarpið Bíóblaður og ræddi við Hafstein Sæmundsson um kvikmyndir í þrjár klukkustundir. Sennilega ekki margir sem horfa á fleiri kvikmyndir á ári en Ásgeir Kolbeins. Ásgeir er mikill kvikmyndaáhugamaður og er með sterkar skoðanir á öllu sem snýr að kvikmyndagerð og kvikmyndum. Saman ræddu þeir um heilan helling í þættinum en meðal annars ræða þeir hversu mikið þeir sakna þess að fara á stórmyndir í bíó en flestöllum stórmyndum hefur verið frestað vegna COVID-19. „Ég er mjög mikið fyrir það að fara í bíó. Þetta er eins og þú segir, fólk er alltaf að tala um bíó og hvort það muni lifa af COVID eða hvort Netflix muni bara taka yfir,“ segir Ásgeir og heldur áfram. „Ég verð alltaf pirraður þegar fólk talar svona af því að það er ekkert það sama að horfa á mynd í bíó eða í tölvunni eða símanum. Þú kemst upp með að horfa á hlaðvörp í hvaða tæki sem er en þegar þú ert kominn með hljóð sem þarf að vera 7.1 Dolby Atmos og hvaðeina, vilt góð myndgæði og svo má ekki gleyma félagslega þættinum, þá er skemmtilegra að fara í bíó.“ Einnig kom til tals hjá þeim hryllingsmyndin Saw og hvernig hún kom skemmtilega á óvart þrátt fyrir að vera sérlega ógeðsleg. „Talandi um Saw, það er geggjað concept. Alveg ógeðslegar myndir en af því að við vorum að tala um persónusköpun, þar ertu með góða tengingu í liðið. Þessi er fáviti og þér er alveg sama þó hann drepist. Þú ert með rosa mikla tengingu þar en á sama tíma ertu að ná að búa til skemmtilegt plott. Þessar myndir snúast að mestu leyti um að bera virðingu fyrir lífinu. Þær fá mann alveg til að hugsa.” Í þættinum ræða þeir einnig hvernig leikstjórinn Christopher Nolan er í hálfgerðri guðatölu hjá Ásgeiri, hvernig Ásgeiri fannst Tenet, hvernig barátta hjá minnihlutahópum í Hollywood hefur gengið, hversu mikilvægt það er að vera með gott hljóð þegar þú horfir á góða bíómynd, hvernig leiklistin hefur þróast í gegnum árin og fleira.
Bíó og sjónvarp Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið „Nútíminn er trunta“ Lífið Seiðandi glæsikvendi á lausu Lífið Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Lífið Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Lífið Eltihrellirinn í Baby Reindeer íhugar að leita réttar síns Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Gerða og glæsilegar gellur á Edition Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Draumur Katrínar Eddu og Markúsar verður að veruleika Trítaði sig og fékk sér Teslu: „Hvað ertu með í laun eiginlega?“ Hönnunarhæð Karinar í Nola til sölu Baldurs og Felix-fáni falur Menningarunnendur nutu veðurblíðunnar í miðborginni Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Allt það besta úr þáttaröðinni Öll þessi ár Fyrstu kaupendur hafi þessi atriði í huga Rikki G svaraði kallinu og lét draum Ólafs Jóhanns rætast Sjá meira