Innlent

„Ég hélt bara að klaka­stykkin ætluðu í gegnum bílinn”

Máni Snær Þorláksson skrifar
Þorkell bjóst við að skemmdirnar yrðu meiri en það sér þó á bílnum.
Þorkell bjóst við að skemmdirnar yrðu meiri en það sér þó á bílnum. Þorkell Þorkelsson

Þorkell Þorkelsson var að keyra á Suðurlandsvegi klukkan rétt rúmlega 16 í gær þegar hann mætti stærðarinnar snjóruðningstæki sem var að keyra á hinni akreininni. Bíll Þorkels varð fyrir skemmdum og hann leitar nú að ökumanni tækisins.

„Hann er að keyra þarna á móti mér á töluverðri ferð og nær að ausa svona gjörsamlega yfir okkur,” segir Þorkell í samtali við Vísi um málið.

„Strókurinn stóð örugglega í svona fimm, sex, sjö metrum. Bíllinn sem var svona sex, sjö metrum fyrir framan mig – hann hvarf bara í klakaregni, bókstaflega, svörtu klakaregni. Ég reyni eitthvað að hægja á mér en maður er náttúrulega bara að keyra þarna, hvað á maður að gera?”

Þrátt fyrir að Þorkell hafi reynt að hægja á sér þá náði hann ekki að forðast klakaregnið. 

Taldi sig hafa sloppið með skrekkinn

„Ég fæ þetta yfir allan bílinn og ég hélt bara að klakastykkin ætluðu í gegnum bílinn,” segir hann.

Klakinn fór þó ekki í gegnum bílinn og því hélt Þorkell að hann hefði sloppið með skrekkinn. Þegar á leiðarenda var komið var honum þó ljóst að svo var ekki alveg. 

„Stuðarinn brotnaði að framan og annað framljósið. Annað hef ég ekki séð ennþá en ég efast ekki um að það sjáist meira á bílnum þegar ég fer að þrífa hann,” segir hann.

„Það er eiginlega magnað hvað í rauninni skemmdist lítið, miðað við lætin. Ég hélt að framrúðan ætlaði hreinlega niður úr.”

Enginn haft samband

Þorkell óskaði eftir aðstoð vegna málsins í færslu sem hann birti á Facebook. Hann leitar nú að ökumanni snjóruðningstækisins. 

„Shit happens eins og maðurinn sagði en þætti vænt um ef ökumaður snjóruðningstækisins gæti gefið sig fram,” segir hann í færslunni.

Þá hefur hann haft samband bæði við Reykjavíkurborg og Vegagerðina vegna málsins en hann hefur enn ekki fengið nein svör. 

„Það hefur enginn haft samband við mig ennþá” segir hann í samtali við blaðamann.

„Ég fékk Árekstur.is til þess að koma og taka tjónaskýrslu og allt svoleiðis, þeir ætla líka að vinna í málinu. Þeir efast um að viðkomandi verktaki muni yfirhöfuð viðurkenna þetta þannig að maður veit ekki.”



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×