„Mikill skellur fyrir stóran hóp af fólki“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. maí 2022 11:31 Magnús Davíð Norðdahl lögmaður. Vísir/Sigurjón Lögmaður gagnrýnir harðlega að hefja eigi aftur brottvísanir á hælisleitendum í stórum stíl. Umbjóðendur hans hafi fest hér rætur í faraldrinum. Hann hafnar því sem hann kallar alhæfingu ríkislögreglustjóra, sem segir 250 manns dvelja hér án heimildar eftir að hafa neitað að undirgangast sóttvarnareglur.
Nær algjört hlé hefur verið á brottvísunum í faraldri kórónuveirunnar vegna ferðatakmarkanna af ýmsum toga. En nú stendur til að hefja brottvísanir á ný og umbjóðendur Magnúsar Davíðs Norðdahls lögmanns eru byrjaðir að fá símtöl þess efnis. Fréttablaðið ræddi við Magnús um málið í morgun. „Ákaflega sorglegt“ Í tilkynningu ríkislögreglustjóra í morgun segir að um 250 dvelji enn hér á landi án heimildar vegna þess að þeir hafi neitað að undirgangast sóttvarnareglur móttökuríkjanna. Magnús mótmælir þessari alhæfingu í samtali við fréttastofu - hann sé með umbjóðendur sem ekki hafi neitað slíku. Þá bendir hann á að aðstæður í móttökuríkinu Grikklandi séu afar slæmar. Auk þess sem umbjóðendur hans hafi fest hér rætur. „Þarna eru aðilar sem hafa kannski verið hér í tvö ár, rúmlega sumir hverjir, hafa aðlagast hér, myndað tengsl við landið. Jafnvel eignast barn hérna, fengið vilyrði um vinnu á þessum tíma. Þarna er líka tilvonandi móðir sem gengin er átta mánuði á leið sem stendur til að vísa úr landi líka. Þannig að þetta er auðvitað ákaflega sorglegt,“ segir Magnús. Þú hefur verið í sambandi við umbjóðendur þína, hvernig líður þeim? „Þeim líður bara hræðilega. Það er ekkert hægt að lýsa því öðruvísi. Þetta er mikill skellur fyrir stóran hóp af fólki.“ Prófmál fyrir dóm í september Þá bendir Magnús á að margir í hópnum hafi verið hér á landi í að minnsta kosti ár og ættu því rétt á að fá mál sín tekin til efnismeðferðar. Stjórnvöld hafi hins vegar kennt umbjóðendum hans um að hafa tafið mál sín - og þeir fái því ekki efnismeðferð. „Við erum að láta reyna á þetta núna fyrir dómi. Það er eitt mál af þessu tagi sem verður flutt 13 september næstkomandi. Ef það mál vinnst þá er alveg ljóst að stjórnvöld eru að framkvæma ólögmætar brottvísanir og eru ranglega að kenna umsækjendum um alþjóðlega vernd um að hafa tafið mál sín,“ segir Magnús.
Hælisleitendur Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Sjá meira