„Get ekki lifað eðlilegu lífi lengur“ Sindri Sverrisson skrifar 23. maí 2023 08:31 Erling Haaland með Englandsmeistarabikarinn sem hann fékk í hendurnar á sunnudaginn. Getty/Michael Regan Norska knattspyrnustjarnan Erling Haaland segir að úr því sem komið er geti hann ekki lifað eðlilegu lífi. Hann hefur vakið athygli um allan heim með framgöngu sinni hjá Manchester City í vetur.
Haaland hefur skorað 53 mörk fyrir City í öllum keppnum í vetur og sett markamet á sinni fyrstu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. Eftir að hafa orðið Englandsmeistari í fyrstu tilraun um helgina ræddi þessi 22 ára leikmaður, frá norska bænum Bryne, meðal annars um hvernig það væri að vera kominn í hóp stærstu fótboltastjarna heims. „Ég býst við að það séu nokkuð fleiri sem vita núna hver ég er, svo það er orðið enn erfiðara að gera venjulegustu hluti. En svona er lífið mitt núna og ég get ekki kvartað yfir því,“ sagði Haaland í viðtali við Viaplay í gær. Í viðtalinu kvaðst hann ekki hafa breytt miklu sjálfur í sínu lífi, þó að hann fengi vissulega meiri umönnun en áður, en sagði þó engan vafa á því að lífið hefði breyst. „Lífið hefur breyst. Ég get ekki lifað eðlilegu lífi lengur. Svoleiðis er það bara,“ sagði Haaland. „Ég reyni að vera ég sjálfur eins og ég get, og hafa gott og heiðarlegt fólk í kringum mig. Ég tel að það sé lykilatriði. Það er akkúrat það sem ég hef. Þetta angrar mig ekki svo mikið,“ sagði Haaland sem enn getur landað þrennunni með City því liðið spilar úrslitaleik enska bikarsins 3. júní og úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu 10. júní.
Enski boltinn Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sport Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Tiger trúir enn á sjálfan sig: „Líður enn eins og ég geti unnið golfmót“ Golf Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Sport Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ Enski boltinn „Þetta var eitt það erfiðasta sem ég hef farið í gegnum“ Sport Fleiri fréttir Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Líkir Havertz við Liverpool-hetju Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Havertz: „Verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni“ Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila „Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ Fyrsti stóri titill United-kvenna Sjá meira