Fékk drottninguna til að hlæja í tilefni dagsins: „Skal hundur heita ef ég læt kerlingu stjórna mér“ Fanndís Birna Logadóttir skrifar 14. janúar 2022 21:00 Mette Frederikssen forsætisráðherra var meðal þeirra sem fluttu tölu í tilefni dagsins. AP/Mads Claus Rasmussen Fimmtíu ár eru liðin frá því að Margrét Þórhildur Danadrottning tók við krúnunni. Hátíðarhald var takmarkað vegna kórónuveirufaraldursins en þó var athöfn í danska þinghúsinu í tilefni dagsins. Forsætisráðherra Danmerkur minntist þess þegar landsmenn greiddu atkvæði um hvort kona mætti taka við krúnunni á sínum tíma.
Margrét Þórhildur varð drottning Dana þann 14. janúar 1972 eftir að faðir hennar, Friðrik IX, lést 72 ára að aldri. Jens Otto Krag, þáverandi forsætisráðherra landsins, tilkynnti um andlát konungsins á svölum Kristjánsborgarhallar degi síðar og lýsti því þá formlega yfir að Margrét væri ný drottning landsins. Í dag hefur hin 81 árs gamla Margrét Þórhildur verið drottning í 50 ár en einungis Kristján IV, sem réð ríkjum á sautjándu öld, hefur setið lengur á konungsstól í landinu, eða 59 ár. Þó að formlegri hátíðardagskrá hafi verið frestað í dag var afmælisins minnst með athöfn í þinghúsinu þar sem Mette Frederiksen forsætisráðherra og Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, voru meðal ræðumanna. Þá hélt Margrét Þórhildur og meðlimir fjölskyldu hennar til Dómkirkjunnar í Hróarskeldu þar sem krans var lagður við leiði foreldra drottningarinnar. Frekari hátíðarhöldum hefur verið frestað fram til september. „Svona varð það og svona er það“ Margrét var elst þriggja dætra Friðriks konungs og Ingiríðar drottningar en á sínum tíma þurfti þjóðaratkvæðagreiðslu til að kona gæti tekið við krúnunni. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, vísaði í ræðu sinni í þinginu í dag til ummæla sem látin voru falla í kringum þjóðaratkvæðagreiðsluna árið 1953. „Ég vil biðjast afsökunar fyrir fram á orðavalinu. Þetta var ekki kurteislega orðað. En samkvæmt dagbók formannsins var þetta orðað svona: "Ég skal hundur heita ef ég læt kerlingu stjórna mér." Tilvitnun lýkur. En svona varð það og svona er það,“ sagði ráðherrann og hló þá drottningin. Margrét Þórhildur nýtur mikilla vinsælda í Danmörku og virðist því hafa staðið við stóru orðin í ræðunni sem hún flutti þegar hún tók við. Þar bað hún guð um að gefa sér styrk til að taka við arfleið föður hennar en hún sagði það hennar markmið að leggja allan sinn dugnað og kraft í að vera drottning Dana. Hún hefur komið víða við frá því að hún tók við krúnunni og er til að mynda mikill Íslandsvinur. Hún hefur hitt alla forseta Íslands frá því að Kristján Eldjárn var forseti og átti sömuleiðis í mjög góðu sambandi við Vigdísi Finnbogadóttur. Í viðtali við fréttastofu árið 2017 sagðist Margrét alltaf hafa verið mjög meðvituð um sérstök tengsl sín við Ísland. „Fyrstu kynni mín af Íslandi eru frá heimsókn foreldra minna til landsins og það var áður en ég fæddist. Það tengist því að ég ber íslenskt nafn. Foreldrar mínir úskýrðu hvers vegna ég héti Þórhildur og að þau hefðu valið mér íslenskt nafn líka,” sagði Margrét í viðtali við Heimi Már Pétursson. Viðtalið í heild sinni má finna hér fyrir neðan.
Danmörk Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Kóngafólk Margrét Þórhildur II Danadrottning Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent Fleiri fréttir Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Sjá meira