Handbolti

Þjóðverjar í erfiðri stöðu eftir tap gegn Norðmönnum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska handboltalandsliðinu þurfa á sigri að halda í næsta leik til að halda vonum sínum á lífi.
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska handboltalandsliðinu þurfa á sigri að halda í næsta leik til að halda vonum sínum á lífi. Nebojsa Tejic/Kolektiff Images/DeFodi Images via Getty Images

Norðmenn unnu mikilvægan fimm marka sigur gegn Alfreð Gíslasyni og lærisveinum hans í þýska landsliðinu í handbolta er liðin mættust á EM í kvöld. Lokatölur urðu 28-23 og vonir Þjóðverja um sæti í undanúrslitum fara minnkandi.

Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og Þjóðverjar leiddu fyrstu mínútur leiksins. Norska liðið náði þó forystunni um miðbik fyrri hálfleiksins og héldu henni fram að hléi. Þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 14-12, Norðmönnum í vil.

Norska liðið jók forystu sína hægt og bítandi í síðari hálfleik og náði mest sex marka forskoti í stöðunni 25-19. Norska liðið hleypti því þýska aldrei nálægt sér eftir það og vann að lokum nokkuð öruggan fimm marka sigur, 28-23.

Norðmenn eru nú í öðru sæti milliriðils tvö með fjögur stig eftir þrjá leiki, líkt og Svíþjóð. Noregur mætir Evrópumeisturum Spánar í næsta leik og geta hrifsað toppsætið af Spánverjum með sigri þar.

Þjóðverjar sitja hins vegar í fjórða sæti riðilsins með tvö stig og liðið þarf nauðsynlega á sigri gegn Svíum í næsta leik að halda til að eiga möguleika á sæti í undanúrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×