Myrkur yfir Jesústyttunni til stuðnings við Vinicius Sindri Sverrisson skrifar 23. maí 2023 07:59 Vinicius Junior bendir á áhorfendur sem beitt höfðu hann kynþáttaníði á leiknum við Valencia á sunnudaginn. Getty/Mateo Villalba Slökkt var á ljósunum við hina frægu Jesústyttu í Ríó de Janeiro í Brasilíu í gærkvöld, í eina klukkustund, til að sýna stuðning við Vinicius Junior vegna kynþáttaníðsins sem hann hefur orðið fyrir á Spáni.
Umsjónarmenn styttunnar bættust þar með í hóp mikils fjölda fólks sem sýnt hefur Vinicius stuðning eftir að þessi magnaði leikmaður Real Madrid var beittur kynþáttaníði af áhorfendum á útileik gegn Valencia á sunnudaginn. Styttan stendur í 710 metra hæð og gnæfir yfir íbúum Ríó. Erkibiskupsdæmið sem hefur umsjón með styttunni skipulagði gjörninginn í gærkvöld í samstarfi við brasilíska knattspyrnusambandið og stofnun sem berst gegn kynþáttaníði í fótbolta. „Erkibiskupsdæmi frelsarans Jesú Krists hafnar þeim kynþáttafordómum sem brasilíski knattspyrnumaðurinn Vinicius Junior hefur orðið fyrir. Slökkt verður á lýsingu minnisvarðans til tákns um sameiginlega baráttu gegn rasisma, og í samstöðu með leikmanninum og öllum þeim sem verða fyrir fordómum um heim allan,“ sagði í tilkynningu frá stofnunni á Instagram. Fyrr í gær höfðu brasilísk stjórnvöld kallað eftir því að spænsk stjórnvöld og íþróttamálayfirvöld refsuðu þeim sem stæðu á bakvið „rasísku árásirnar“ á Vinicius, og Gianni Infantino forseti FIFA lýsti yfir stuðningi við leikmanninn. Þekktar íþróttastjörnur á borð við Kylian Mbappé, Rio Ferdinand og Lewis Hamilton hafa látið í sér heyra og sýnt Vinicius stuðning. Preto e imponente. O Cristo Redentor ficou assim há pouco. Uma ação de solidariedade que me emociona. Mas quero, sobretudo, inspirar e trazer mais luz à nossa luta. Agradeço demais toda a corrente de carinho e apoio que recebi nos últimos meses. Tanto no Brasil quanto mundo pic.twitter.com/zVBcD4eF8k— Vini Jr. (@vinijr) May 22, 2023 Vinicius birti mynd af Jesústyttunni á Twitter og sagði stuðninginn sem honum var sýndur hafa hreyft við sér. Hann kvaðst þó fyrst og fremst vonast til að verða öðrum innblástur og hleypa meira ljósi inn í baráttuna sem fólk stæði í. Luis Rubiales, formaður spænska knattspyrnusambandsins, viðurkenndi að kynþáttaníð væri vandamál innan fótboltans í landinu og að „yfirlýsingar í fjölmiðlum dygðu ekki lengur til“.
Spænski boltinn Mest lesið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Í beinni: FH - Afturelding | Úrslitin fara af stað Handbolti Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Fleiri fréttir Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Í beinni: Stjarnan - Breiðablik | Hörkuslagur í bikarnum Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Sjá meira