Leikjavísir

GameTíví: Förðun og Far Cry 6

Samúel Karl Ólason skrifar
GameTíví förðun

Það verður margt um að vera í streymi kvöldsins hjá GameTíví. Strákarnir munu bæði spila leikinn Far Cry 6 og keppa í förðun.

Leikurinn Far Cry 6 fjallar um uppreisnarmenn í karabíueyríkinu Yara og gerist í stærðarinnar opnum heimi.

Á meðan stákarnir skoða Yara og skjóta á hermenn munu  þeir keppa um í því að mála sig sem Venom, í tilefni af frumsýningu kvikmyndarinnar Venom 2.

Streymi GameTíví má finna á Stöð 2 eSport, Twitchsíðu GameTíví og hér að neðan. Útsendingin hefst klukkan átta í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×