Serena úr leik í Frakklandi

Serena Williams er úr leik í Frakklandi.
Serena Williams er úr leik í Frakklandi. AFP

Serena Williams er úr leik á Opna franska meistaramótinu í tennis eftir óvænt tap gegn Elenu Rybakina í 4. umferð mótsins í París í gærkvöldi. Rybakina, sem er frá Kasakstan, vann leikinn 2:0.

Fyrsta settinu lauk með 6:3-sigri Rybakinu og öðru settinu með 7:5-sigri Rybakinu eftir upphækkun. 

Serena er á meðal sigursælustu tennisleikara sögunnar en hún hefur unnið 23 risatitla á ferlinum.

Margaret Court er sú sigursælasta með 24 risatitla á bakinu en Serena getur jafnað met Court á Wimbledon-mótinu á Englandi sem hefst 28. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert