Nýjar takmarkanir fá misjafnar viðtökur: Menntskælingar í skýjunum en hárgreiðslumenn brjálaðir Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 14. september 2021 19:27 Nýjar samkomutakmarkanir sem taka gildi á miðnætti leggjast misjafnlega í fólk. Hárgreiðslufólk skilur ekkert í því að þurfa áfram að bera grímur á meðan menntaskólanemar geta ekki beðið eftir að komast aftur á skólaböll.
Og hljóðið í eigendum skemmtistaða er heldur dauft þó þeir taki fagnandi öllum þeim aukaklukkustundum sem heilbrigðisráðherra leyfir þeim að halda stöðum sínum opnum. Ný reglugerð um sóttvarnaaðgerðir tekur gildi á miðnætti en samkvæmt henni munu 500 geta komið saman án takmarkana og opnunartími skemmtistaða verður lengdur um klukkustund. Almenn grímuskylda þar sem ekki er hægt að tryggja einn metra á milli fólks fellur þó ekki niður og það eru hárgreiðslumenn síður en svo sáttir með. Krakkarnir tjútta á meðan við berum grímur „Þetta eru mjög mikil vonbrigði. Við erum bara mjög ósáttar með þetta, erum orðnar þreyttar á að vera með þetta. Skrifuðum ekkert undir það þegar við byrjuðum að læra hárgreiðslu eða vinna við hárgreiðslu að vera með grímur,“ segir Svava Björg Harðardóttir, einn eigenda Touch hárstofu. „Svo eru unglingarnir að dansa og tjútta niðri í bæ og öll utan í hvert öðru og hér stöndum við með grímur.“ Á miðnætti tekur einnig í gildi breyting á svokölluðum hraðprófsviðburðum en þá má halda slíka viðburði fyrir 1.500 manns. Ef þeir eru sitjandi á viðburðinum þurfa þeir ekki að vera með grímu en ef um standandi viðburð er að ræða er grímuskylda enn í gildi. En það er undantekning gerð á þessu fyrir framhaldsskóla og grunnskólanema. Sem þýðir að þeir geta farið að halda böll á ný í fyrsta skipti síðan faraldurinn hófst. Við ræddum við formenn tveggja nemendafélaga í kvöldfréttum Stöðvar 2 í dag: Aukaklukkutíminn fínn en lítið meira en það Veitingamenn landsins hafa þá ekki mikla skoðun á þeim aukaklukkutíma sem heilbrigðisráðherra hefur úthlutað þeim. Staðir mega nú hleypa inn gestum til miðnættis en verða að hafa lokað tómum stað klukkan eitt. Geoffrey Huntingdon-Williams, meðeigandi og rekstrarstjóri á Prikinu.Vísir/Egill
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Næturlíf Framhaldsskólar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Innlent Fleiri fréttir Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Sjá meira