Kári telur rétt að halda aðgerðum óbreyttum: „Ég held að þetta verði allt í lagi“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 13. janúar 2022 12:01 Kári bindur vonir við mótefnamælingar Íslenskrar erfðagreiningar sem hófust í vikunni en þær geta metið hversu stór hluti landsmanna hefur smitast af kórónuveirunni. Niðurstaðna úr fyrri mælingu er að vænta um miðja næstu viku. Vísir/Vilhelm Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að eina leiðin til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu kórónuveirunnar sé útgöngubann, en telur það þó ekki skynsamlegt hér á landi. Hann telur óbreyttar aðgerðir bestu leiðina en að styðja þurfi Landspítalann mun betur en gert hafi verið hingað til. „
Þetta virðist valda sjúkdómi sem er mildari heldur en þau afbrigði veirunnar sem við höfum verið að takast á við áður, sem er að öllum líkindum ekki bara vegna þess að svo mörg okkar eru svo vel bólusett, heldur vegna þess að þetta afbrigði í sjálfu sér er mildara,” segir Kári. „Ég er ekki viss um að okkur takist að minnka útbreiðsluna án þess að fara bara í algjört lockdown, sem ég held að sé ekki skynsamlegt á þessu augnabliki. Ég held að við verðum að finna einhverja leið til þess að styðja við Landspítalann betur heldur en við höfum gert hingað til.” Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lýsti í gær gríðarlegum áhyggjum af stöðunni í faraldrinum og því álagi sem skapast hefur á Landspítalann. Þar af leiðandi búist hann við að leggja fram tillögur til hertari aðgerða, líklega fyrir helgi. Kári tekur undir það að leita þurfi leiða til að draga úr álagi á heilbrigðiskerfið. Hér á landi hins vegar gangi það ekki upp að grípa til útgöngubanns. „Ég myndi ekki grípa til neinna annarra aðgerða heldur en við höfum í gangi núna. Ef við byggjum í einhvers konar útópísku samfélagi þar sem væri enginn vandi að fá fólk til þess að hoppa og skoppa að vild stjórnvalda, þá væri sá möguleiki fyrir hendi að ég myndi segja að við ættum að loka öllu næstu tvær til þrjár vikur, en það er bara ekki skynsamlegt eins og ástandið sé í dag,” segir Kári, sem þó virðist bjartsýnn á að það fari að birta til í faraldrinum. „Ég held að þetta verði allt í lagi.”
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Fleiri fréttir María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Sjá meira