Upptaka: Upplýsingafundur almannavarna

Rögnvaldur Ólafsson stýrir fundi dagsins.
Rögnvaldur Ólafsson stýrir fundi dagsins. Ljósmynd/Almannavarnir

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fór yfir stöðu mála varðandi eldgosið á Reykjanesskaga á upplýsingafundi í dag. Fundurinn hófst kl. 11 og var í beinni útsendingu á mbl.is.

Upptöku frá fundinum má sjá hér fyrir neðan. 
 

„Ýmsar spurningar hafa komið upp varðandi gasmengun sem berst frá gosstöðinni,  bæði í byggð og á staðnum.  Einnig almennt um hvernig fólk ber sig að við eldgos, áhrif gosmengunar á heilsu fólks og hættur sem ber að varast.

Á fundinum verða aðilar sem geta varpað ljósi á ýmislegt er varðar eldgosið.  Þar verða Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn almannavarna, Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun, Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu Veðurstofu Íslands, Magnús Tumi jarðeðlisfræðingur frá HÍ og Gunnar Guðmundsson lungnalæknir,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert