Ensk-sænsk sveit sigraði í Hörpu

Sveitin Black sigraði.
Sveitin Black sigraði. Ljósmynd/Aðsend

Ensk-sænska sveitin Black vann sveitakeppni Bridgehátíðarinnar sem haldinn var í Hörpu um helgina. Black endaði með 142,98 stig en meðalskor var 100 stig.

Sveit Black var með níu stiga forystu fyrir síðustu umferð keppninnar og vann þægilegan sigur 13,72-6,28 gegn sænsku sveitinni Fredin sem þurfti að sætta sig við áttunda sætið. Sveitina Black skipa Englendingarnir Andrew Black, Andrew Mcintosh og Tom Paske, og Svíarnir Símon Hult, Peter Berthau og Gunnar Hallberg.

Íslensk sveit í fimmta sæti

Íslenska sveitin J.E.Skjanni var með góða forystu eftir keppni á laugardaginn en gekk afleitlega á sunnudaginn og endaði í 10.-11. sæti. Efsta íslenska sveitin var Grant Thornton en hún hafnaði i fimmta sæti.

Lokastaða ellefu efstu sveita:

1. Black 142,98

2. Ballebo 134,31

3. Don Julio 132,44

4. Harris 127,97

5. Grant Thornton 127,21

6. Hauge 127,20

7. De Botton 126,62

8. Fredin 126,40

9. The Crazies 126,32

10.-11. Hjördís Eyþórsdóttir 123,42

10.-11. J.E.Skjanni 123,42

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert