Niðurstöður úttektar á Tryggingastofnun öllum áfall Kjartan Kjartansson skrifar 15. október 2020 21:03 Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara. Vísir
Úrbóta er þörf til að byggja upp traust á Tryggingastofnun ríkisins eftir niðurstöður nýrrar stjórnsýsluúttektar. Formaður Landssambands eldri borgara segir niðurstöðurnar áfall fyrir alla en athugasemdir sem gerðar voru við störf stofnunarinnar séu í anda gagnrýni sambandsins. Í ljós koma að 90% lífeyrisþega fengu rangt greitt frá Tryggingastofnun á árunum 2016 til 2019 í úttekt Ríkisendurskoðunar sem greint var frá í gær. Bent var á að bæta þyrfti málsmeðferð við ákvarðanatöku, efla upplýsingagjöf og gæta þess að hærra hlutfall viðskiptavina fái réttar greiðslur. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara (LEB), segir niðurstöður Ríkisendurskoðunar vekja sterk viðbrögð í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í dag. „Stofnun sem hefur verið talin vinna vel og vilja gera sem allra best fyrir þá sem þangað leita. Því er þessi úttekt áfall fyrir allra aðila málsins,“ segir þar. Athugasemdir við að núgildandi lög um lífeyri séu ógagnsæ og erfitt sé að vinna eftir þeim segir Þórunn að séu í anda þess sem LEB hafi bent á. Lögin sem voru sett árið 2017 hafi átt að einfalda kerfið en þau hafi þvert á móti verið til vandræða. „Lögin kveða á um að endurreikna þurfi greiðslur til fólks ef tekjuáætlanir þess eru ekki í fullkomnu samræmi við rauntekjur ársins. Að það þurfi að endurreikna um 90% af árstekjum þeirra sem fá greiðslur frá TR er grafalvarlegt mál og býður heim hættu á mistökum,“ segir Þórunn í yfirlýsingunni. Þá segir hún að kanna þurfi hvers vegna margir láti hjá líða að tilkynna stofnuninni um breyttar tekjur. Gagnrýnir hún að starf umboðsmanns lífeyrisþega sé enn ekki orðið að veruleika þrátt fyrir að TR hafi fengið fjárveitingu til þess undanfarin fjögur ár. „Nú þarf að bregðast hratt við og vinna að úrbótum svo að TR hljóti aftur fullt traust þeirra sem þangað sækja sína framfærslu,“ segir Þórunn.
Tryggingar Stjórnsýsla Eldri borgarar Tengdar fréttir Segir ráðherra skorta áhuga á málaflokknum Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, segir skýrslu Ríkisendurskoðunar sýna fram á „gríðarlega vankanta“, bæði hjá Tryggingastofnun ríkisins og félagsmálaráðuneytinu. 14. október 2020 18:48 90 prósent lífeyrisþega fengu rangar greiðslur Ríkisendurskoðun telur að ýmislegt megi betur fara í starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins (TR). 14. október 2020 16:53 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira
Segir ráðherra skorta áhuga á málaflokknum Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, segir skýrslu Ríkisendurskoðunar sýna fram á „gríðarlega vankanta“, bæði hjá Tryggingastofnun ríkisins og félagsmálaráðuneytinu. 14. október 2020 18:48
90 prósent lífeyrisþega fengu rangar greiðslur Ríkisendurskoðun telur að ýmislegt megi betur fara í starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins (TR). 14. október 2020 16:53