Ítalía vann til bronsverðlauna í Þjóðadeild Evrópu í knattspyrnu karla með 2:1 sigri á Belgíu í dag.
Nicolo Barella kom Ítölum yfir strax í upphafi síðari hálfleiks með laglegu skoti á lofti og Domenico Berardi tvöfaldaði forystuna um hann miðjan með marki úr vítaspyrnu.
Charles De Ketelaere minnkaði muninn fyrir Belga skömmu fyrir leikslok eftir laglega stungusendingu Kevin De Bruyne.
Mark De Ketelaer var hans fyrsta fyrir Belgíska A-landsliðið.
Fleiri urðu mörkin ekki og bronsið því Ítala.
Spánn og Frakkland leika til úrslita í Þjóðadeildinni klukkan 18:45 í kvöld.