Keflavík vill semja aftur við Milka og Maric Atli Arason skrifar 3. júní 2023 07:32 Dominykas Milka gæti verið aftur á leið til Keflavíkur. Visir/ Diego Pétur Ingvarsson, nýráðinn þjálfari Keflavíkur, er strax farinn að taka til hendinni í leikmannamálum Keflavíkur. Samkvæmt fréttatilkynningu Keflavíkur við ráðningu þjálfarans er von á fréttum af leikmannamálum félagsins á næstu dögum. „
Halldór Garðar er samningsbundinn og við vorum að fá Arnór Sveinsson til að skrifa undir. Svo er samningur við Magnús Pétursson nánast í hús. Við erum einnig að reyna að fá Milka og Maric til að vera áfram,“ sagði Pétur í samtali við Vísi. „Við erum bara með Halldór Garðar og Arnór sem eru komnir á samning og við vinnum ekki marga leiki með bara tvo leikmenn, það er alveg á hreinu,“ sagði hann kíminn. „Ég hitti Milka í dag [í gær] og við erum að reyna að semja við hann. Við erum líka að reyna að semja við Igor Maric aftur.“ Pétur segir Keflvíkinga ekki vera að horfa sérstaklega til leikmanna sem komnir eru á 3 ára regluna. „Það skiptir engu máli. Þú mátt bara vera með einn utan Bosman A svæðis en þú mátt vera með eins marga af Bosman A svæðinu og þú vilt. Þannig það skiptir engu máli hvort það sé Milka á 3 ára reglunni eða Igor Maric sem er Króati á Bosman A svæðinu,“ sagði Pétur og bætti við að það lág best við að heyra í þeim tveim þar sem þeir væru enn þá á svæðinu. Viðræður við Jaka Brodnik eru ekki hafnar og óvíst hvort af þeim verði. „Ef maður reynir að einbeita sér af of mörgu í einu þá bara klúðrast allt, þannig við byrjuðum á þessu og þeir tveir [Maric og Milka] eru hérna enn þá þannig þess vegna átti ég möguleika á því að hitta þá og við byrjuðum á því.“ Fjölskyldutengsl Synir Péturs, þeir Hilmar og Sigurður Péturssynir hafa fylgt föður sínum nánast hvert fótmál á þjálfaraferli hans. Ekki er þó von á því að annar hvor þeirra spili með Keflavík á næsta tímabili. „Hilmar er búinn að semja aftur við Münster í Þýskalandi og Sigurður er á samningi hjá Breiðablik sem hann skrifaði undir fyrir tveimur eða þremur vikum. Þannig það er pottþétt að þeir spila allavegana ekki fyrir Keflavík í ár. Það kemur samt annað ár eftir þetta ár og þá er alveg hægt að skoða þetta. Ég held bara að þeir tveir séu hvorugir nógu góðir til að spila fyrir Keflavík í dag,“ sagði Pétur og hló. Kári Jónsson, leikmaður Vals, er bróðursonur Péturs. Pétur telur ekki líklegt að Kári yfirgefi Val en Pétur er þó opinn fyrir því að athuga stöðuna. „Við þurfum leikmenn sem geta spilað á báðum endum vallarins og hann klárlega passar inn í þá hugmyndafræði. Kári er samt með tveggja ára samning við Val. Ef hann verður laus mála hjá Val þá held ég að Keflavík, ásamt flest öllum öðrum liðum í landinu, munu heyra í honum. Kári er óumdeilanlega besti leikmaðurinn í deildinni í dag,“ svaraði Pétur aðspurður út í Kára. „Ég hitti Kára reglulega í fjölskylduboðum og annað. Ég get alveg lofað því að ég mun hlera hann eitthvað, þannig að við höfum eitthvað forskot á aðra ef hann skyldi losna,“ sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari Keflavíkur, að endingu.
Subway-deild karla Keflavík ÍF Tengdar fréttir „Stefna hátt og spila skemmtilegan körfubolta“ Pétur Ingvarsson, nýráðin þjálfari Keflavíkur, segir að markmið liðsins í vetur verður að spila skemmtilegan körfubolta ásamt því að berjast um alla þá titla sem í boði eru. 3. júní 2023 00:32 Mest lesið Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Fótbolti Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Dagskráin í dag: Oddaleikur og nýliðaval Sport Fleiri fréttir Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Sjá meira
„Stefna hátt og spila skemmtilegan körfubolta“ Pétur Ingvarsson, nýráðin þjálfari Keflavíkur, segir að markmið liðsins í vetur verður að spila skemmtilegan körfubolta ásamt því að berjast um alla þá titla sem í boði eru. 3. júní 2023 00:32
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum