Biden styður að fella niður einkaleyfi á bóluefnum Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2021 20:34 Katherine Tai, sendiherra Bandaríkjanna hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni tilkynnti ákvörðun ríkisstjórnar Bidens í kvöld. AP/Sarah Silbiger Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, hefur ákveðið að styðja viðleitni innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um að fella niður einkaleyfi á bóluefnum gegn Covid-19. Markmiðið er að gera öðrum ríkjum kleift að framleiða meira af bóluefnum og hraða bólusetningum á heimsvísu.
Katherine Tai, sendiherra Bandaríkjanna hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni, tilkynnti þessa ákvörðun í kvöld. Undanfarna daga hafa staðið yfir viðræður innan veggja stofnunarinnar um það að fella niður viðskiptareglur til að auka framleiðslu bóluefna. Í tilkynningunni segir hún að frekari viðræður þurfi að eiga sér stað og þær gæti tekið einhvern tíma, áður en önnur ríki geti farið að framleiða bóluefnin. Viðræðurnar hafa snúist um að fella tímabundið niður einkaleyfi á bóluefnum svo hægt væri að framleiða meira af þeim á heimsvísu. AP fréttaveitan segir að til standi að funda aftur um málið í byrjun júní. Tai sagði faraldur Covid-19 vera hnattrænt neyðarástand og það fordæmalausa ástand sem hefði myndast í heiminum, kallaði á fordæmalausar aðgerðir. These extraordinary times and circumstances of call for extraordinary measures. The US supports the waiver of IP protections on COVID-19 vaccines to help end the pandemic and we ll actively participate in @WTO negotiations to make that happen. pic.twitter.com/96ERlboZS8— Ambassador Katherine Tai (@AmbassadorTai) May 5, 2021 Meðal þeirra sem hafa lýst yfir stuðningi við það að fella niður einkaleyfi á bóluefnum eru Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Hann hefur meðal annars bent á að tólin til tímabundinnar niðurfellingar eru í verkfærakistu WTO og ekki sé betri tími til að beita þeim tólum en nú. Gegn heimsfaraldri sem hafi leitt til minnst 3,2 milljóna dauðsfalla og smitað 437 milljónir manna. Leiðtogar rúmlega hundrað ríkja hafa lýst yfir stuðningi við þessar aðgerðir. Andstæðingar þeirra segja málið flóknara en fólk átti sig á. Framleiðsla bóluefna sé flókin og hún aukist ekki af sjálfu sér við það að fella niður einkaleyfi á bóluefnum. Þá óttast þeir að aðgerðirnar muni koma niður á nýsköpun í framtíðinni.
Bandaríkin Bólusetningar Joe Biden Tengdar fréttir Börn niður í tólf ára fá bóluefni Pfizer Kanadísk heilbrigðisyfirvöld hafa tekið ákvörðun um að heimila að börn niður í tólf ára verði bólusett með bóluefni Pfizer gegn covid-19. Kanada er þar með fyrsta landið sem leyfir svo ungum börnum að vera bólusett gegn covid-19. 5. maí 2021 17:45 Fimm handteknir fyrir að selja „endurunna“ sýnatökupinna Lögregluyfirvöld á Indónesíu hafa handtekið nokkra starfsmenn lyfjafyrirtækis, sem eru grunaðir um að hafa þvegið sýnatökupinna og selt. Lögregla telur svikin hafa átt sér stað frá því í desember. 5. maí 2021 07:46 Biden vill bólusetja tólf til sautján ára sem allra fyrst Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti í gærkvöldi nýja áætlun sem miðar að því að búið verði að bólusetja 70 prósent allra fullorðinna Bandaríkjamanna fyrir þjóðhátíðardag landsins, fjórða júlí. 5. maí 2021 07:01 Bóluefni Sinovac komið í áfangamat hjá EMA Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur hafið áfangamat á bóluefni kínverska líftæknifyrirtækisins Sinovac gegn Covid-19. Er fyrirtækið þar með komið einu skrefi nær því geta sótt um markaðsleyfi í Evrópu. 4. maí 2021 15:45 Yfir 20 milljónir greinst og kallað eftir útgöngubanni á landsvísu Fleiri en 20 milljónir manna hafa greinst með Covid-19 á Indlandi. Alls greindust 357.229 smit síðasta sólarhring og 3.449 létust. Hávær köll heyrast nú um útgöngubann á landsvísu. 4. maí 2021 08:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Fleiri fréttir Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sjá meira
Börn niður í tólf ára fá bóluefni Pfizer Kanadísk heilbrigðisyfirvöld hafa tekið ákvörðun um að heimila að börn niður í tólf ára verði bólusett með bóluefni Pfizer gegn covid-19. Kanada er þar með fyrsta landið sem leyfir svo ungum börnum að vera bólusett gegn covid-19. 5. maí 2021 17:45
Fimm handteknir fyrir að selja „endurunna“ sýnatökupinna Lögregluyfirvöld á Indónesíu hafa handtekið nokkra starfsmenn lyfjafyrirtækis, sem eru grunaðir um að hafa þvegið sýnatökupinna og selt. Lögregla telur svikin hafa átt sér stað frá því í desember. 5. maí 2021 07:46
Biden vill bólusetja tólf til sautján ára sem allra fyrst Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti í gærkvöldi nýja áætlun sem miðar að því að búið verði að bólusetja 70 prósent allra fullorðinna Bandaríkjamanna fyrir þjóðhátíðardag landsins, fjórða júlí. 5. maí 2021 07:01
Bóluefni Sinovac komið í áfangamat hjá EMA Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur hafið áfangamat á bóluefni kínverska líftæknifyrirtækisins Sinovac gegn Covid-19. Er fyrirtækið þar með komið einu skrefi nær því geta sótt um markaðsleyfi í Evrópu. 4. maí 2021 15:45
Yfir 20 milljónir greinst og kallað eftir útgöngubanni á landsvísu Fleiri en 20 milljónir manna hafa greinst með Covid-19 á Indlandi. Alls greindust 357.229 smit síðasta sólarhring og 3.449 létust. Hávær köll heyrast nú um útgöngubann á landsvísu. 4. maí 2021 08:57