Twitter lokaði á reikning Trump-framboðsins tímabundið Kjartan Kjartansson skrifar 15. október 2020 18:07 Twitter hefur tekið upplýsingafals Trump forseta á miðlinum fastari tökum upp á síðkastið. Nú var það Twitter-reikningur framboðs hans sem fékk að kenna á refsivendi samfélagsmiðilsins. Vísir/Getty
Aðgangi framboðs Donalds Trump Bandaríkjaforseta á samfélagsmiðlinum Twitter var lokað tímabundið eftir að það deildi myndbandi um Joe Biden, mótframbjóðanda forsetans, sem stjórnendur Twitter töldu brjóta notendaskilmála miðilsins. Trump hótar Twitter málaferlum og repúblikanar á þingi vilja kalla forstjóra fyrirtækisins fyrir þingnefnd. Myndbandið sem Trump-framboðið deildi vísaði til umdeildrar umfjöllunar götublaðsins New York Post með ásökunum á hendur Biden og syni hans Hunter frá því í gær. Yfirskrift myndbandsins var „Joe Biden er lygari sem hefur verið að ræna landið okkar um árabil“. Aðgangi Kayleigh McEnany, blaðafulltrúa Hvíta hússins, var einnig lokað tímabundið eftir að hún deildi frétt blaðsins. Twitter taldi myndbandið stríða gegn reglum um birtingu á illa fengnum upplýsingum og benti á að framboðið gæti þurft að eyða því til að geta haldið áfram að deila efni á miðlinum. Fyrirtækið dró síðar í land og opnaði aftur fyrir aðgang framboðsins, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Facebook greip einnig til aðgerða til þess að hægja á útbreiðslu fréttar New York Post í gær. Sagði talsmaður fyrirtækisins að það væri gert til þess að gefa staðreyndavökturum færi á að fara yfir sannleiksgildi hennar sem veruleg spurningarmerki hafa verið sett við. Trump sagði búast við meiriháttar málaferlum og virtist boða einhvers konar aðgerðir gegn Twitter þegar hann var spurður út í uppákomuna í dag. „Það eru hlutir sem geta gerst sem eru mjög alvarlegir sem ég vil heldur að gerist ekki en þeir verða líklega að gera það,“ sagði Trump, myrkur í máli. Dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings sem repúblikanar stýra ætlar að greiða atkvæði um að stefna Jack Dorsey, forstjóra Twitter, til að bera vitni strax í næstu viku. Dorsey viðurkenndi í gær að Twitter hefði ekki staðið sig vel í að gera grein fyrir aðgerðum sínum og að það hefði ekki verið ásættanlegt að koma í veg fyrir að notendur deildu vefslóð á fréttina án skýringa.
Donald Trump Twitter Forsetakosningar í Bandaríkjunum Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Facebook og Twitter skipta sér af vafasamri frétt um Biden Samfélagsmiðlarisarnir Facebook og Twitter takmörkuðu deilingar á vafasamri frétt bandarísks götublaðs um Joe Biden, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, í dag. Talsmaður Facebook segir miðilinn hægja á dreifingu fréttarinnar á meðan staðreyndavaktarar meti sannleiksgildi hennar. 14. október 2020 21:14 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Erlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Fleiri fréttir Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Sjá meira
Facebook og Twitter skipta sér af vafasamri frétt um Biden Samfélagsmiðlarisarnir Facebook og Twitter takmörkuðu deilingar á vafasamri frétt bandarísks götublaðs um Joe Biden, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, í dag. Talsmaður Facebook segir miðilinn hægja á dreifingu fréttarinnar á meðan staðreyndavaktarar meti sannleiksgildi hennar. 14. október 2020 21:14