Jóhann Berg fyrirliði á morgun

Jóhann Berg Guðmundsson verður með fyrirliðabandið gegn Bosníu á morgun.
Jóhann Berg Guðmundsson verður með fyrirliðabandið gegn Bosníu á morgun. Ljósmynd/KSÍ

Jóhann Berg Guðmundsson verður fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta er það mætir því bosníska í undankeppni EM annað kvöld. Leikið verður í Zenica. 

Arnar Þór Viðarsson staðfesti tíðindin á blaðamannafundi á Bilino Polje-vellinum í Zenica í kvöld.

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson er í leikbanni og er því ekki með gegn Bosníu annað kvöld. Fékk Aron rautt spjald í leik gegn Albaníu í Þjóðadeildinni í september á síðasta ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka