Banni við drónaflugi aflétt

Hér má sjá þyrlu fljúga rétt við Keili.
Hér má sjá þyrlu fljúga rétt við Keili. mbl.is/Eggert

Banni við flugi dróna á svæðinu sem markast af Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi, Krýsuvíkurleið og Suðurstrandarvegi verður aflétt klukkan 19.00 í kvöld. Það var sett í gær af öryggisástæðum vegna hugsanlegra eldsumbrota á Reykjanesskaga. 

Banninu verður aflétt þegar könnunarflugi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra lýkur klukkan 19.00 í kvöld. 

Ef til eldsumbrota kæmi á næstu dögum, vikum eða mánuðum sem krefðist lokunar á ný mun tilkynning verða send, kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum.

Í gær var einnig ákveðið að fréttamenn þyrftu að vera í fylgd björgunarsveitar til að fara inn fyrir lokanir á Keilisvegi. Þeim lokunum hefur verið aflétt. Athygli er vakin á lokunum á svæðinu á vef Vegagerðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert