Líkti fremstu mönnum Arsenal við litla mafíu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. apríl 2021 13:30 Pierre-Emerick Aubameyang og Alexandre Lacazette fengu á baukinn frá Gary Neville. getty/Stuart MacFarlane Gary Neville líkti sóknarmönnum Arsenal við litla mafíu sem hefðu snúist gegn stjóra liðsins, Mikel Arteta.
Neville sagðist hafa þótt mjög óþægilegt að horfa á Arsenal í 3-0 tapinu fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. „Í hálfleik fannst mér það sem ég hafði séð mjög óþægilegt. Eftir leikinn sat ég aðeins lengur og talaði við Martin Tyler. Mér leið ekki vel með það sem ég sá,“ sagði Neville í Monday Night Football á Sky Sports í gær. „Það hefur nokkrum sinnum gerst í gegnum árin að ég hef reiðst eftir leiki en það er mjög sjaldgæft. Ég man eftir að QPR var lið sem ég var alls ekki hrifinn af þegar við vorum að byrja með Monday Night Football, mér fannst eitthvað rangt við Sunderland og nokkrum sinnum fannst mér Chelsea snúast gegn stjóranum sínum.“ Neville sagðist hafa upplifað það sama þegar hann horfði á leikmenn Arsenal. „Á laugardaginn fannst mér nokkrir leikmenn framarlega á vellinum vera eins og lítil mafía. Þetta virtist vera lítill hópur leikmanna sem leið ekki vel, eins og tengingin milli þeirra og stjórans væri ekki til staðar. Það leit út eins og stjórinn hefði fengið sig fullsaddan af þeim,“ sagði Neville. Hann sakaði fremstu menn Arsenal um að leggja sig ekki nógu mikið fram í leiknum gegn Liverpool og sagði að Martin Ødegaard hefði verið sá eini sem hefði reynt að pressa. „Ég myndi ganga svo langt að segja að hinir hefðu verið grín. Það var engin orka. Calum Chambers, sá heiðarlegi drengur, var að reyna að ýta við Nicolas Pepe. Mér fannst vanta meira framlag frá þeim,“ sagði Neville. „Mikel Arteta sagðist hafa verið brugðið. Ég held að hann hafi verið í áfalli yfir því sem hann sá frá fremstu mönnum sínum þegar Arsenal var ekki með boltann. Ég gæti sýnt tuttugu dæmi um það.“ Arsenal er í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Sport Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Enski boltinn „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Handbolti Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Körfubolti Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum Handbolti „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Handbolti Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Sjá meira