Pakkhúsinu lokað vegna smits

Höfn í Hornafirði.
Höfn í Hornafirði. mbl.is/Ómar Óskarsson

Kórónuveirusmit greindist hjá einum starfsmanni veitingastaðarins Pakkhússins á Höfn í Hornafirði seinnipartinn í gær.

Í dag verða allir starfsmenn fyrirtækisins sendir í skimun ásamt því að húsakynni veitingahússins verða sótthreinsuð.

„Við vonum að hægt verði að opna Pakkhúsið sem allra fyrst, en á meðan bendum við viðskiptavinum okkar á aðra frábæra veitingastaði á Höfn í Hornafirði. Þá hvetjum við alla til að gefa engan afslátt þegar kemur að sóttvörnum,“ segir á facebooksíðu veitingastaðarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert