Innlent

Lögreglan lýsir eftir manni sem framselja á til Lettlands

Máni Snær Þorláksson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir hinum 28 ára gamla Harijs Graikste.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir hinum 28 ára gamla Harijs Graikste. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Harijs Graikste. Fyrir liggur staðfest ákvörðun um að verða við beiðni um afhendingu á honum til Lettlands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að Harijs sé ekki talinn vera hættulegur. Hann er 28 ára gamall og er frá Lettlandi.

Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Harijs, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 112.

Harijs er jafnframt hvattur til að gefa sig fram við lögreglu.

Fyrir liggur staðfest ákvörðun um að verða við beiðni um afhendingu á Harijs til Lettlands.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×