Körfuknattleikslandslið kvenna og karla skipuð leikmönum 20 ára og yngri héldu bæði í morgun til verkefna þar sem liðin munu spila nokkra landsleiki á næstu dögum.
Norðurlöndin settu saman leiki og mót milli sinna U20-ára liða þegar ákveðið var að fara ekki á EM-mót FIBA í ár. Þau lönd sem vildu taka þátt töluðu sig saman og úr urðu þrír vináttuleikir í kvennaflokki og mót í karlaflokki.
Flogið var til Stokkhólms þar sem sem stúlkurnar munu dvelja og spila gegn Svíum og Finnum dagana 21.-23. júlí.
Piltarnir héldu svo áfram í kjölfarið yfir til Tallinn í Eistlandi þar sem þeir munu dvelja og keppa gegn Eistum, Finnum og Svíum dagana 20.-23. júlí.
U20 kvenna:
Hægt er að sjá leiki liðsins á netinu í beinu streymi: www.youtube.com/user/basketklipp/featured
Leikjaplan (íslenskur tími)
Leikmannahópurinn:
4 · Fanndís María Sverrisdóttir · ÍR
5 · Thea Olafía Lucic Jónsdóttir · Grindavík
6 · Sigrún Björg Ólafsdóttir · Fjölnir
7 · Hjördís Lilja Traustadóttir · Keflavík
8 · Kristín Alda Jörgensdóttir · Ármann
9 · Hrefna Ottósdóttir · Þór Ak.
10 · Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur
11 · Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík
12 · Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir · Grindavík
13 · Eygló Kristín Óskarsdóttir · KR
14 · Jenný Geirdal Kjartansdóttir · Grindavík
15 · Ólöf Rún Óladóttir · Keflavík
Þjálfari: Halldór Karl Þórsson
Aðstoðarþjálfarar: Guðrún Ósk Ámundadóttir og Yngi Páll Gunnlaugsson
Sjúkraþjálfari: Styrmir Örn Vilmundarson
U20 karla:
Hægt er að sjá leiki liðsins á netinu í beinu streymi gegn gjaldi: sport.television.ee/Upcoming/basketball
Livestatt verður á: online.basket.ee
Leikjaplan (íslenskur tími)
Leikmannahópurinn:
4 · Hilmir Hallgrímsson · Stjarnan
5 · Veigar Páll Alexandersson · Njarðvík
6 · Sigurður Pétursson · Breiðablik
7 · Ástþór Atli Svalason · Valur
8 · Júlíus Orri Ágústsson · Þór Ak.
9 · Dúi Þór Jónsson · Stjarnan
10 · Þorvaldur Orri Árnason · KR
11 · Benóný Svanur Sigurðarson · ÍR
12 · Hugi Hallgrímsson · Stjarnan
13 · Sveinn Búi Birgisson · Selfoss
14 · Styrmir Snær Þrastarson · Þór Þ.
15 · Ragnar Ágústsson · Þór Ak.
Þjálfari: Pétur Már Sigurðsson
Aðstoðarþjálfarar: Benedikt Guðmundsson og Adam Eiður Ásgeirsson
Sjúkraþjálfari: Stefán Magni Árnason
Baldur Þór Ragnarsson er yfirþjálfari U20 en ferðast ekki með á mótið.
Veigar Áki Hlynsson þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla og kom Ragnar Ágústsson inn í hans stað.