Erlent

Flug­völlur Fær­eyinga fær að taka við stærri þotum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Boeing 757-þota FarCargo lenti í fyrsta sinn á Vogaflugvelli þann 5. mars en á undanþágu.
Boeing 757-þota FarCargo lenti í fyrsta sinn á Vogaflugvelli þann 5. mars en á undanþágu. Jónis Albert Nielsen/jn.fo

Flugvöllurinn í Vogum í Færeyjum, eini flugvöllur eyjanna, verður færður upp um einn öryggisflokk. Það þýðir að Boeing 757-fraktþota FarCargo, dótturfélags Bakkafrosts, fær loksins varanlegt leyfi til að lenda í sinni eigin heimahöfn.

FarCargo keypti þotuna í þeim megintilgangi að flytja ferskan eldislax úr sjókvíum Bakkafrosts, stærsta fyrirtækis Færeyinga, með sem skemmstum hætti á verðmæta markaði bæði í Evrópu og Ameríku. Var komu hennar fagnað með viðhöfn í byrjun marsmánaðar að viðstöddum helstu ráðamönnum eyjanna.

Það þótti því heldur en ekki neyðarlegt þegar í ljós kom að flugvélin mátti ekki nota flugvöllinn þar sem vænghaf hennar var of breitt miðað við öryggisflokkun vallarins. Vogaflugvöllur var skráður með viðmiðunarkóða C, sem leyfir allt að 36 metra breitt vænghaf, en 757-þotan er með 41 metra vænghaf. Í C-flokki eru þotur eins og Airbus A-320 og Boeing 737.

Þotan var upphaflega smíðuð til farþegaflugs árið 2001 en FarCargo lét breyta henni í fraktflugvél.Jónis Albert Nielsen/jn.fo

Málið var leyst til bráðabirgða með því að danska samgöngustofan veitti einskiptis undanþágu fyrir flugvélina svo hún mætti lenda í Færeyjum. Sú undanþága var síðan framlengd meðan leitað var varanlegrar lausnar en á meðan er vélin búin að fljúga fjölda ferða með lax, einkum til New York og Brussel.

Kringvarp Færeyja greindi frá því í dag að dönsk samgönguyfirvöld væru núna búin að höggva á hnútinn. Niðurstaðan er sú að Vogaflugvöllur verður frá og með 1. maí færður upp í viðmiðunarkóða D. Það þýðir að flugvélar með allt að 52 metra vænghaf mega lenda í Færeyjum frá mánaðamótum. Í þeim flokki eru auk 757-þotunnar breiðþotur eins og Boeing 767 og Airbus A-330.


Tengdar fréttir

Boeing 757-þotan fær ekki að lenda í Færeyjum

Áform færeyska fiskeldisfyrirtækisins Bakkafrosts um reglubundið flug með ferskan lax frá Færeyjum eru í uppnámi þar sem Boeing 757-fraktflutningaþota dótturfélagsins FarCargo fær ekki að lenda á flugvellinum í Vogum. Ástæðan er sú að 41 metra vænghaf hennar telst of breitt fyrir þennan eina flugvöll Færeyinga sem skilgreindur er fyrir allt að 36 metra vænghaf flugvéla.

Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll

Bæjarstjóri Þórshafnar í Færeyjum, Heðin Mortensen, vill hefja undirbúning að gerð nýs alþjóðaflugvallar í Færeyjum. Ummælin féllu í viðtali við Kringvarpið í vikunni í framhaldi af vandræðum sem fraktflugfélagið FarCargo glímir við að nýta Vogaflugvöll til fiskflutninga með Eysturoy, Boeing 757-þotu félagsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×