Samstarf

Rafrænn fundur: Framtíð peninga

SFF
Lilja Björk Einarsdóttir, formaður stjórnar SFF, Dan Awrey, lagaprófessor við Cornell háskóla, Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Jón Helgi Egilsson meðstofnandi Monerium flytja erindi á fundinum.
Lilja Björk Einarsdóttir, formaður stjórnar SFF, Dan Awrey, lagaprófessor við Cornell háskóla, Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Jón Helgi Egilsson meðstofnandi Monerium flytja erindi á fundinum.

Samtök fjármálafyrirtækja bjóða til rafræns fundar um framtíð peninga. Hver er staða peninga í rafrænu fjármálakerfi? Hvert er hlutverk seðlabankanna í fjármálakerfi framtíðarinnar? Hver eru áhrifin á fjármálastöðugleika? Þetta eru meðal þeirra spurninga sem ræddar verða. Fundurinn sem hefst klukkan 14 og hægt að taka þátt hér á Vísi.

„Örar breytingar hafa átt og eru að eiga sér stað á fjármálamörkuðum. Því tengdu vakna margar spurningar sem mikilvægt er að ræða. Spurningar á borð við stöðu peninga í rafrænu fjármálakerfi, samspil við löggjöf og áhrifin á fjármálastöðugleika. Á fundinum fáum við aðila sem þekkja vel til sem ætla að ræða framtíð peninga frá ólíkum hliðum. Við fáum kannski ekki öllum spurningum svarað á einum fundi en við fáum vonandi góða sýn á stöðuna og opnum glugga inn í nánustu framtíð í þessum efnum," segir Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri SFF, en hún stýrir fundinum.

Hægt verður að taka þátt í fundinum með því að smella hér.

Dagskrá fundarins:

  • Lilja Björk Einarsdóttir, formaður stjórnar SFF flytur upphafsávarp
  • Dan Awrey, lagaprófessor við Cornell háskóla flytur erindið Gresham´s New Law
  • Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefn flytur erindið Seðlabankarafeyrir (CBDC): Hvert verður hlutverk seðlabankanna í fjármálakerfi framtíðarinnar?
  • Jón Helgi Egilsson, meðstofnandi Monerium flytur erindið Getur DeFi aukið fjármálastöðugleika?
  • Að erindum loknum verður opnað fyrir spurningar.




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×