Fótbolti

Liðsfélagar Neymar hjá brasilíska landsliðinu vona að hann hætti ekki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Neymar var væntanlega ekki að leggja hér til að hann þyrfti annan bolta en þessi mynd er tekin eftir markalausa jafnteflið á móti Kólumbíu.
Neymar var væntanlega ekki að leggja hér til að hann þyrfti annan bolta en þessi mynd er tekin eftir markalausa jafnteflið á móti Kólumbíu. AP/Fernando Vergara

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar er bara 29 ára gamall en hann talar þessa dagana eins og landsliðsferillinn hans sé að nálgast endastöð.

Í þessum landsliðsglugga talaði Neymar um að hann búist við því að HM í Katar á næsta ári verði hans síðasta heimsmeistarakeppni af því að honum finnst hann varla hafa andlegan styrk til að standast álagið að spila með brasilíska landsliðinu lengur.

Liðsfélagar Neymar hjá brasilíska landsliðinu vilja styðja við bakið á kappanum og vonast eftir því að hann haldi áfram með landsliðinu eftir HM 2022. Þeir skilja samt að pressan er mikil á stærstu fótboltastjörnu Brasilíumanna.

„Við viljum að hann spili með okkur í mörg ár í viðbótar,“ sagði miðjumaðurinn Fred sem spilar með Manchester United.

„Það er samt erfitt að tala um hugsanir einhvers annars manns. Stundum er mikil pressa á fólki. Ekki bara á Neymar, heldur líka á Messi og Cristiano Ronaldo, Við viljum hafa hann með okkur og hann er einn af bestu leikmönnum sem við höfum nokkurn tímann séð í Brasilíu,“ sagði Fred.

Varnarmaðurinn Thiago Silva, sem spilar með Chelsea, segir að þessi mikla pressa á Neymar miðað við aðra leikmenn sé ósanngjörn. Neymar neitaði að tala við blaðamenn eftir markalaust jafntefli á móti Kólumbíu í undankeppni HM en þar náði hann sér ekki á strik.

„Við viljum oft gleyma því sem hann hefur gert og einbeitum okkur að því sem er ekki mikilvægt. Hann setur líka mikla pressu á sig sjálfan. Ég vona að hann tapi ekki gleðinni því hann er einstakur strákur. Þegar hann er ánægður og að gera það sem hann elskar, þá skilar hann alltaf sínu og spilar eins og vel og hann hefur gert best. Það er alltaf betra fyrir liðið okkar,“ sagði Thiago Silva.

Thiago Silva er góður vinur Neymar og hefur líka sent honum stuðning í gegnum samfélagsmiðla. „Ef þú þarft einhvern til að vera sterkan fyrir þig þá veistu að ég verða alltaf til taks. Silva fjölskyldan elskar þig,“ skrifaði og birti með mynd af sér að faðma Neymar.

Richarlison, framherji Everton, lét sitt ekki eftir liggja. Hann tvítaði mynd af borða sem á stóð: „Neymar, ef þú spilaði í himnaríki þá myndi ég deyja til að horfa á þig“.

Það breytir ekki því að Neymar átti mjög slakan leik á móti Kólumbíu. Hann getur bætt úr því á móti Úrúgvæ á morgun en það er lokaleikur brasilíska landsliðsins í þessum glugga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×