Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. apríl 2024 11:15 Katrín bendir á að fólk viti hvar það hefur hana; hennar pólítísku skoðanir liggi uppi á borðum. Vísir/Vilhelm „Við skulum átta okkur á því að það er auðvitað unnið að fjöldamörgum málum og forsætisráðherrann kemur nú ekkert að þeim öllum,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, í Pallborðinu í gær.
Katrín var spurð að því hvort það orkaði tvímælis að hún myndi möglega verða í þeirri stöðu að undirrita lög frá Alþingi sem hún hefði sjálf átt að komu að. Aðrir gestir Pallborðsins voru Halla Tómasdóttir athafnakona og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona og sagði Steinunn forsætisráðherra hljóta að bera ábyrgð á sinni ríkisstjórn. „Það sem ég er að benda á er að ég held að krafa almennings á mínar hendur, því ég er spurð um þetta að sjálfsögðu á fundum, verði enn ríkar um það að ég gæti óhlutdrægni í því mati meðal annars hvernig eigi að beita málskotsréttinum og minni á það aftur að ég held að öll sem eru í framboði þau hafa sýna lífssýn og skoðanir, pólitísku skoðanir sem og aðrar,“ sagði Katrín. „Ég held hins vegar að í mínu tilfelli þá eru þær bara algjörlega á yfirborðinu, öll mín verk eru á yfirborðinu og fólk getur metið það hvort ég hafi eingöngu látið mínar eigin skoðanir ráða för eða hvort ég hafi einmitt lagt mig fram um það að taka ákvarðanir í mínu embætti, til að mynda sem forsætisráðherra, sem þjónuðu heildarhag. Og ég vil bara minna á það líka að í því verkefni hef ég fengið afskaplega stórar áskoranir sem ég held að hafi tekist mjög vel til í.“ Katrín nefndi heimsfaraldur kórónuveiru sem dæmi, þar sem góður árangur hefði náðst og hún hefði lagt sig fram um að hlusta og ná árangri í þágu heildarhagsmuna. Það hlyti að vera sú krafa sem gerð væri til forseta. „Það að taka þátt í pólitísku starfi snýst nefnilega ekki um einhvern vinskap einhvers fólks, heldur snýst nákvæmlega um þetta,“ sagði Katrín. Hún var þá innt eftir því hvort það hefði ekki verið vinskapur hennar og Bjarna Benediktssonar, núverandi forsætisráðherra, sem hefði haldið ríkisstjórnarsamstarfinu gangandi. „Ja, það eru alls konar fabúleringar um það en ég held að fólk verði miklu frekar að horfa á þær ákvarðanir sem raunverulega hafa verið teknar og þann árangur sem raunverulega hefur náðst.“ Hér fyrir neðan má horfa á Pallborðið í heild.
Forsetakosningar 2024 Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Pallborðið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira