Skjálftavirknin færst aftur að Fagradalsfjalli Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. mars 2021 06:39 Skjálftavirknin hefur nú aftur færst í áttina að Fagradalsfjalli. Vísir/RAX Jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga er nú aftur að mestu bundin við Fagradalsfjall eftir að hún færði sig meira í átt til Grindavíkur og Bláa lónsins í gærkvöldi. Enginn skjálfti yfir fjórum að stærð varð í nótt en fjórir mældust sem voru þrír að stærð að sögn Bjarka Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Alls hafa mælst 700 skjálftar á skaganum frá því á miðnætti. Þá hefur ekki orðið vart við neinn óróa eins og mældist eftir hádegi á miðvikudag og ekki er byrjað að gjósa á svæðinu. Líkurnar á gosi nú eru taldar minni en í fyrradag. „Í gærkvöldi var virknin bundin við Grindavík og Bláa lónið en svo stökk þetta upp aftur til Fagradalsfjalls í nótt. Þetta raðast meira og minna á svæðið þar sem þetta var áður en þetta fór niður til Grindavíkur í gærkvöldi,“ segir Bjarki í samtali við Vísi. Stór skjálfti, 4,2 að stærð, mældist um tveimur kílómetrum norður af Grindavík klukkan 19:14 í gær. Bjarki segir það auðvitað betra fyrir fólkið að skjálftarnir hafi nú fært sig aftur fjær bænum að Fagradalsfjalli. Aðspurður hvað hægt sé að lesa í þessa færslu á skjálftavirkninni segir Bjarki að um sé ræða mismunandi sprungukerfi, annars vegar við Keili og Fagradalsfjall og hins vegar við Grindavík. Mikið af uppsafnaðri orku sé enn í jarðskorpunni og virknin stökkvi fram og til baka á milli þessara kerfa. Hér fyrir neðan má sjá vakt Vísis sem hófst þegar óróinn mældist á miðvikudag. Vaktin heldur áfram eitthvað fram eftir degi. Þá má fylgjast með svæðinu í beinni útsendingu á Vísi með því að smella hér.
Enginn skjálfti yfir fjórum að stærð varð í nótt en fjórir mældust sem voru þrír að stærð að sögn Bjarka Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Alls hafa mælst 700 skjálftar á skaganum frá því á miðnætti. Þá hefur ekki orðið vart við neinn óróa eins og mældist eftir hádegi á miðvikudag og ekki er byrjað að gjósa á svæðinu. Líkurnar á gosi nú eru taldar minni en í fyrradag. „Í gærkvöldi var virknin bundin við Grindavík og Bláa lónið en svo stökk þetta upp aftur til Fagradalsfjalls í nótt. Þetta raðast meira og minna á svæðið þar sem þetta var áður en þetta fór niður til Grindavíkur í gærkvöldi,“ segir Bjarki í samtali við Vísi. Stór skjálfti, 4,2 að stærð, mældist um tveimur kílómetrum norður af Grindavík klukkan 19:14 í gær. Bjarki segir það auðvitað betra fyrir fólkið að skjálftarnir hafi nú fært sig aftur fjær bænum að Fagradalsfjalli. Aðspurður hvað hægt sé að lesa í þessa færslu á skjálftavirkninni segir Bjarki að um sé ræða mismunandi sprungukerfi, annars vegar við Keili og Fagradalsfjall og hins vegar við Grindavík. Mikið af uppsafnaðri orku sé enn í jarðskorpunni og virknin stökkvi fram og til baka á milli þessara kerfa. Hér fyrir neðan má sjá vakt Vísis sem hófst þegar óróinn mældist á miðvikudag. Vaktin heldur áfram eitthvað fram eftir degi. Þá má fylgjast með svæðinu í beinni útsendingu á Vísi með því að smella hér.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Fleiri fréttir Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Sjá meira