fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

BYKO hefur sölu á Honda aflvélum

Bjarki Sigurðsson
Mánudaginn 10. maí 2021 15:15

Bragi Jónsson, rekstrarstjóri Leigu BYKO, Ægir Emilsson, svæðisstjóri í verslun BYKO Breidd, Atli Már Kolbeinsson hjá Öskju, Hlynur Björn Pálmason, sölustjóri Honda bifreiða hjá Öskju, og Eggert Kristinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs hjá BYKO.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samningur hefur verið undirritaður á milli BYKO og Bílaumboðsins Öskju um að BYKO sjái alfarið um sölu á Honda-aflvélum.

Honda er stærsti framleiðandi aflvéla í heiminum með framleiðslu yfir 30 milljón tækja. Á meðal vinsælla afl- og smávéla má til dæmis nefna rafstöðvar, vatnssdælur og sláttuvélar sem fást bæði knúnar rafmagni og hefðbundnu bensíni. Þá eru vinsæl tæki eins og hekkklippur, snjóblásarar og margt fleira í fjölbreyttu úrvali Honda aflvéla. BYKO verður með vörunar til sölu í verslunum sínum og til leigu í Leigumarkaði BYKO. Askja er áfram umboðsaðili Honda bifreiða á Íslandi.

„Við erum afar ánægðir að fá Honda aflvélar yfir til BYKO. Honda er vel þekkt og vandað merki. Fólk veit að hvaða gæðum það gengur í Honda tækjum og vélum. Þetta styrkir enn frekar stöðu BYKO sem leiðandi fyrirtæki á markaði í sölu og leigu á aflvélum. Við leggjum metnað okkar í að vera fyrsti kostur fyrir einstaklinga, verktaka, fyrirtæki og stofnanir þegar kemur að því að kaupa eða leigja áhöld og tæki,“ segir Eggert Kristinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs hjá BYKO.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Í gær

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Í gær

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“
Fréttir
Í gær

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd