Sigríður segir Mannréttindadómstólinn sýna Alþingi ótrúlega óvirðingu Heimir Már Pétursson skrifar 1. desember 2020 19:20 Sigríður segir Mannréttindadómstólinn ekki krefjast þess að öll mál sem dómararnir fjórir dæmdu í verði endurupptekinn og ekki dæmt brotaþola í prófmáli bætur. Vísir/Vilhelm Sigríður Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra segir Mannréttindadómstólinn sýna Alþingi ótrúlega óvirðingu með dómi sínum í dag varðandi skipan dómara í Landsrétt. En dómurinn gagnrýnir hana og Alþingi fyrir hvernig staðið var að skipan dómaranna fimmtán.
Yfirdeild Mannréttindadómstólsins staðfesti í morgun dóm dómstólsins sjálfs frá því í fyrra um að þáverandi dómsmálaráðherra hafi vissulega haft lagalega heimild til að breyta lista hæfnisnefndar um fimmtán dómara í nýjan Landsrétt. Ráðherra hafi hins vegar hundsað þau skilyrði að rannsaka umsækjendur og leggja á þá sjálfstætt mat. Þá hafi Alþingi gerst brotlegt við lagaákvæði um skipan dómaranna með því að láta ekki greiða atkvæði um hvern og einn þeirra heldur alla saman. Sigríður segir dóminn ekki koma sér á óvart miðað við fyrri dóm og skipan dómstólsins. Sigríður Andersen segir Mannréttindadómstólinn sýna Alþingi ótrúlega óvirðingu.EPA/PATRICK SEEGER „Það er auðvitað hnýtt í ráðherrann. Það er hnýtt í Alþingi og það er hnýtt í Hæstarétt Íslands því það er dómur Hæstaréttar sem er þarna undir. En niðurstaðan virðist samt sem áður í rauninni ekki gera neitt með það og það er sérstaklega áréttað að þetta kalli ekki á að íslenska ríkið þurfi að endurupptaka alla dóma sér hér hafa fallið,“ segir Sigríður. Það væru þá dómar sem þeir fjórir dómarar hefðu dæmt sem Sigríður bætti á lista hæfisnefndar yfir hæfa dómara hafa dæmt. Hver og einn dæmdur í þeim málum þyrfi að ákveða hvort hann leggði mál sitt fyrir nýjan endurupptökudóm sem tók gildi í dag á fullveldisdaginn 1. desember. Sigríður segir ljóst eftir samtöl hennar við leiðtoga allra flokka að óbreyttur listi hefði aldrei verið samþykktur á Alþingi. Alþingi samþykkti að greiða atkvæði um alla dómarana fimmtán í einni atkvæðagreiðslu en ekki í sitthvoru lagi eins og lögin kváðu á um. Sigríður segir það fullkomlega í samræmi við þingskaparlög.Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson „Ég reyndar lagði að mönnum að greiða atkvæði um hvern og einn. En það var ákvörðun forsætisnefndar, ábyggilega í samstarfi við skrifstofustjórann að gera það með þessum hætti. En ég árétta að ég fellst alveg á sjónarmið þingsins að þessu leyti. Þetta er fullkomlega í samræmi við þingskapareglur,“ segir dómsmálaráðherrann fyrrverandi sem sagði af sér eftir dóm undirdeildar Mannréttindadómstólsins. Sigríður segir það mikinn misskilning að halda því fram að þetta væri eitthvað stórkostlegt atriði. Enda hefði Hæstiréttur bent á að þetta varðaði ekki að dómarar hefðu verið ólöglega skipaðir. Tillit hafi verið tekið til margra ábendinga Mannréttindadómstólsins á undanförnum árum en ekki allra. Hæstiréttur hefði lokaorðið í öllum ágreiningi fyrir dómi á Íslandi. „En það virðist vera svlítið erfitt að fá umræðuna eða þá sem taka þátt í þessari umræðu til að átta sig á þessu grundvallaratriði,“ segir Sigríður. Íslendingar séu bundnir af þjóðarrétti en ekki landsrétti í þessum málum. „Það sem ég hef lesið er ótrúleg óvirðing í garð Alþingis Íslendinga sérstaklega með þessari niðurstöðu. Þá held ég að mönnum sé holt að staldra aðeins við og reyna að átta sig á tilgangi og markmiði með þessari þátttöku í dómstólnum,“ segir Sigríður Andersen.
Landsréttarmálið Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mannréttindadómstóll Evrópu Alþingi Dómstólar Tengdar fréttir Ný lög um Endurupptökudóm geta liðkað fyrir endurupptöku mála Nú þegar yfirdeild Mannréttindadómstólsins hefur staðfest dóm réttarins, vakna eflaust margar spurningar um hugsanlegar afleiðingar er varða mál þeirra aðila þar sem umræddir fjórmenningar, sem ekki voru skipaðir með lögmætum hætti, dæmdu í. 1. desember 2020 16:23 Niðurstaðan skýrari að mati Katrínar en vonbrigði að sögn Áslaugar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að niðurstaða yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu sé skýrari en dómur undirdeildarinnar. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir niðurstöðuna vonbrigði. 1. desember 2020 13:08 Þingmaður talar um svartan dag í sögu íslenskrar stjórnskipunar Helga Vala Helgadóttir segist ekki lengur geta treyst íslenskum stjórnvöldum eftir að dóm MDE í Landsréttarmálinu. 1. desember 2020 13:04 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Innlent Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Erlent Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Erlent Katrín á toppnum um allt land Innlent Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Erlent Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Erlent Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima Innlent „Ef stelpur byrja ungar á blæðingum er það fyrsta flaggið“ Innlent Fleiri fréttir Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Katrín á toppnum um allt land Opna miðstöð fyrir palestínsk börn Íslenska landslagið ómetanlegt fyrir manninn með loftnet í höfuðkúpunni Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Myndskeið úr Hamraborg og maður sem heyrir liti með loftneti Kíghósti hefur náð útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu Myndband af þjófunum í Hamraborg í fréttum Stöðvar 2 Bein útsending: Hvernig er best að reka heilbrigðisþjónustu? Helga gert að rannsaka slysasleppingarnar Kjarnorkuknúinn kafbátur í stuttri heimsókn Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima „Sérlega sérstakur“ hellir í Mývatnssveit áfram lokaður Læknir langþreyttur á skriffinnsku: „Mér líður oft eins og Indriða í Fóstbræðrum“ Rúmlega sjö hundruð Grindvíkingar vilja selja Forsetaframbjóðendur í Pallborðinu klukkan 13 á morgun Fylgi forsetaframbjóðenda, mótmæli Grindvíkinga og einhverfa barna Liður í uppbyggingunni að fólk geti sest niður og unnið úr áfallinu Cyrus og Herkúles fá já en Bergman bannaður Dæmdur fyrir árásina í Úlfarsárdal Katrín leiðir og hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur „Ef stelpur byrja ungar á blæðingum er það fyrsta flaggið“ Tvö flutt á slysadeild eftir bílveltu Jón Jónsson kemur nýr inn í stjórn Boða til fundar til að ræða framtíð MÍR eftir dómsmál Fjölgun ofbeldisbrota gegn lögreglu og öðrum opinberum starfsmönnum Ritskoðun bjóra: „Þetta er gert fyrir börnin“ Sjá meira
Ný lög um Endurupptökudóm geta liðkað fyrir endurupptöku mála Nú þegar yfirdeild Mannréttindadómstólsins hefur staðfest dóm réttarins, vakna eflaust margar spurningar um hugsanlegar afleiðingar er varða mál þeirra aðila þar sem umræddir fjórmenningar, sem ekki voru skipaðir með lögmætum hætti, dæmdu í. 1. desember 2020 16:23
Niðurstaðan skýrari að mati Katrínar en vonbrigði að sögn Áslaugar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að niðurstaða yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu sé skýrari en dómur undirdeildarinnar. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir niðurstöðuna vonbrigði. 1. desember 2020 13:08
Þingmaður talar um svartan dag í sögu íslenskrar stjórnskipunar Helga Vala Helgadóttir segist ekki lengur geta treyst íslenskum stjórnvöldum eftir að dóm MDE í Landsréttarmálinu. 1. desember 2020 13:04
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent