Fyrsti læknirinn ákærður vegna þungunarrofs í Texas Samúel Karl Ólason skrifar 20. september 2021 22:45 Læknar hafa að mestu leyti farið eftir lögunum nýju og umdeildu í Texas. AP/LM Otero Búið er að kæra fyrsta lækninn fyrir að framkvæma þungunarrof í Texas eftir að ný og ströng lög tóku gildi. Alan Braid, læknirinn sem um ræðir, sagði opinberlega frá því í síðustu viku að hann hefði framkvæmt aðgerð sem væri gegn lögunum.
Braid skrifaði grein í Washington Post á laugardaginn þar sem hann sagðist hafa farið eftir skyldu sinni sem læknir og sagði konuna sem gekkst undir aðgerðina eiga rétt á henni. Hann sagðist meðvitaður um að ákvörðun hans gæti haft afleiðingar en sagði mikilvægt að reyna á lögmæti laganna, sem hann sagði fara gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. Lögin eru gífurlega umdeild og fela í sér algjört bann við þungunarrofi eftir sex vikna meðgöngu. Á þeim tímapunkti eru margar konur ómeðvitaðar um að þær séu óléttar. Þá innihalda lögin engar undanþágur varðandi nauðganir eða sifjaspell. Þau tóku gildi þann 1. september en eru sérstaklega hönnuð til að komast hjá því að vera felld niður í dómstólum. Við hefðbundnar kringumstæður eru embættismenn sem framfylgja nýjum lögum kærðir til að reyna á lögmæti þeirra. Þessi lög eru skrifuð á þann veg að það er í raun enginn sérstakur sem framfylgir þeim og þar af leiðandi er enginn sem hægt er að kæra. Hver sem er getur kært á grundvelli laganna. Hver sem er geti kært lækni fyrir að framkvæma þungunarrof, eða aðra fyrir að koma að þungunarrofi. Jafnvel þann sem keyrir viðkomandi konu til læknis eða greiðir fyrir aðgerðina. Sá sem kærir getur fengið tíu þúsund dala verðlaun frá yfirvöldum í Texas. Sjá einnig: Hæstiréttur neitar að fella „hjartsláttarlöggjöfina“ úr gildi Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur einnig höfðað mál gegn Texas vegna laganna og það mál verður tekið fyrir þann 20. október. Maðurinn sem kærði Braid heitir Oscar Stilley. Hann er fyrrverandi lögmaður sem býr í Arkansas og var dæmdur fyrir skattsvik árið 2010. Samkvæmt frétt Washington Post er hann að afplána fimmtán ára fangelsis dóm sinn í stofufangelsi. Í samtali við blaðamann sagðist hann ekki mótfallinn þungunarrofi en hann vildi fá tíu þúsund dali. „Ef Texas-ríki ákveður að gefa tíu þúsund dala verðlaunafé, af hverju ætti ég ekki að fá það,“ sagði hann. Stjórnarskrárbundinn réttur frá 1973 Réttur til þungunarrofs var tryggður í stjórnarskrá Bandaríkjanna með úrskurði hæstaréttar í máli sem kallast Roe v. Wade árið 1973. Samkvæmt þeim úrskurði má framkvæma þungunarrof innan 24 vikna á meðgöngu. Íhaldsmenn víða um Bandaríkin hafa þó um árabil barist gegn því og hert að læknum og samtökum sem framkvæma þungunarrof eða koma að þeim með öðrum hætti. Meðal annars með mjög takmarkandi reglugerðum varðandi læknastofur þar sem þungunarrof eru framkvæmd. Sjá einnig: Fleiri ríki vilja nýta sér smuguna sem Texas fann Í frétt AP fréttaveitunnar kemur fram að líklega muni málið gegn Braid verða notað til að kanna lögmæti laganna. Læknirinn muni geta notað það sem vörn að lögin fari gegn stjórnarskránni og þá sé það dómstólsins að ákveða hvort það sé rétt eða ekki.
Bandaríkin Hæstiréttur Bandaríkjanna Þungunarrof Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi Innlent Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Innlent Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Innlent Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Erlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Fleiri fréttir Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Sjá meira