„Hefði viljað standa þetta af mér“ Sindri Sverrisson skrifar 29. nóvember 2021 11:31 Patrik Sigurður Gunnarsson bendir á að hann hafi engan veginn búist við því að samherji hans myndi ráðast á hann. Skjáskot/Discovery+ „Eftir á að hyggja hefði maður viljað standa þetta af sér, en ég er með áverka á hálsinum sem segja svolítið til um hversu fast höggið var,“ segir landsliðsmarkvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson um það þegar liðsfélagi hans fékk rautt spjald eftir að hafa hrint Patrik.
Patrik segir að í raun hafi mjög lítill aðdragandi verið að því þegar liðsfélagi hans hjá norska liðinu Viking, David Brekalo, missti stjórn á skapi sínu í gær. Viking hafði þá skorað tvö mörk seint í leiknum sem á endanum dugðu til 3-2 útisigurs gegn Kristiansund, í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Brekalo fékk að líta rauða spjaldið á fimmtu mínútu uppbótartíma, fyrir að hrinda Patriki eins og sjá má hér að neðan. Hva er det som skjer med Viking?! Brekalo angriper egen keeper og blir utvist på overtid. Utrolige scener på tampen! pic.twitter.com/MdyvGQIHfv— Eurosport Norge (@EurosportNorge) November 28, 2021 Patrik tekur undir það að sér sárni að á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum sé fjallað um atvikið með þeim hætti að hann hafi „fiskað“ liðsfélaga sinn af velli með leikaraskap. „Ég slæ ekki frá mér, og hvort sem maður slær frá sér og leikmaðurinn dettur eða ekki þá er það rautt spjald. Mér sárnar smá að maður sé gerður að sökudólgi þó að ég hafi ekki slegið frá mér. En við gerðum báðir mistök, lærum af þessu og þetta er bara búið,“ segir Patrik. Have you ever seen anything like this before? — Eurosport UK (@Eurosport_UK) November 29, 2021 „Þetta gerðist eftir fyrirgjöf að okkar marki. Hann lét boltann fara og bjóst við því að ég myndi taka hann. Ég kallaði aldrei neitt og lét boltann vera, sem rúllaði svo aftur fyrir endalínu. Síðan sneri ég mér við og lét hann vita að ég hefði ekki sagt neitt, og að þá taki ég ekki boltann. Í hita leiksins koma fram tilfinningar og hann ýtti nokkrum sinnum frá sér. Rak hendurnar frá viðbeini og upp í háls,“ segir Patrik. Held að það þurfi talsvert högg til að fá áverka á hálsi Hann viðurkennir að í hægri endursýningu í sjónvarpi sé ef til vill skiljanlegt að atvikið líti þannig út að hann geri meira úr því en efni standi til. „Þetta „slow motion view“ lítur ekkert æðislega út fyrir mig sjálfan, þrátt fyrir að ég sé með áverka á hálsinum eftir hann og að þeir leikmenn sem sáu þetta á vellinum hafi séð að þetta var meira högg. Ég er nú ekki þekktur fyrir að leika og ég held það þurfi talsvert högg til þess að maður sé með áverka á hálsinum. Ef manni er ýtt í háls og ofar þá myndu flestir grípa um höfuðið. Ég bjóst líka ekki við þessu frá eigin leikmanni, svo ég var ekki í jafnvægi og þá er auðveldara að detta aftur fyrir sig. En ég hefði viljað standa þetta af mér,“ segir Patrik. „Ekkert vesen á milli okkar tveggja“ Patrik segir að þeir Brekalo hafi nánast strax verið farnir að geta gert grín að því sem gerðist. „Það var eiginlega farið að gera grín að þessu um leið og við löbbuðum inn í klefa. Það er búið að gera svolítið mikið úr þessu á samfélagsmiðlum. Það var ekkert vesen á milli okkar tveggja, hvorki fyrir né eftir, og við skildum bara sáttir eftir þetta. Við höfum haft gott samband, eins og oft er þegar leikmenn koma inn í lið á svipuðum tíma,“ segir Patrik en þeir Brekalo komu báðir til Viking í ágúst. Det er bare smil å se på Kvernberget Flystasjon Heia Viking! pic.twitter.com/TFHYVulcAh— Viking Fotball (@vikingfotball) November 28, 2021 „Hann [Brekalo] fór sjálfur í viðtal í norskum fjölmiðlum í gær og baðst afsökunar á þessu. Hann gerði auðvitað mistök með því að slá frá sér.“ Á leið í viðræður við Brentford Eftir sigurinn í gær er allt útlit fyrir að Viking endi í 3. sæti norsku úrvalsdeildarinnar en liðið vantar aðeins eitt stig úr síðustu tveimur leikjunum til að tryggja sér það, og þar með Evrópusæti, eftir að hafa verið í 6. sæti þegar Patrik kom. Hann er hjá Viking að láni frá enska úrvalsdeildarfélaginu Brentford og mun að óbreyttu snúa aftur til Englands í árslok en Patrik mun á næstunni ræða við forráðamenn Brentford um framhaldið.
Norski boltinn Mest lesið Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Fótbolti Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Handbolti Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Handbolti „Þegar ég var sjö ára í Birmingham dreymdi mig um svona kvöld“ Fótbolti Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ Handbolti „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Handbolti „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Handbolti „Á flestum sviðum körfuboltans voru þeir bara betri en við“ Körfubolti Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þegar ég var sjö ára í Birmingham dreymdi mig um svona kvöld“ Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó Joselu hetjan þegar Real Madrid fór í úrslit í enn eitt skiptið „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Fiorentina aftur í úrslit Sambandsdeildarinnar Gamli FH-ingurinn kom Fredrikstad áfram í bikarnum Dæmdur fyrir aðstoð við morð en valinn í landslið Síle Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp „Mbappé kann ekki að vera hetja“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins „Höfum vaxið með hverjum leik“ Dortmund í úrslit eftir sigur í París Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Napoli í kapphlaupið um Albert Sjá meira