Kristilegir demókratar höfðu sigur í Sachsen-Anhalt Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 7. júní 2021 12:00 Reiner Haseloff forsætisráðherra hér með Sven Schulze, leiðtoga flokksins í Sachsen-Anhalt. EPA/Filip Singer Kristilegir demókratar í Þýskalandi fengu flest sæti í kosningum til ríkisþings í sambandsríkinu Sachsen-Anhalt í gær. Niðurstöðurnar fyrir flokkinn voru mun betri en kannanir bentu til.
Kristilegir demókratar, flokkur Angelu Merkel kanslara, fengu rétt rúm 37 prósent atkvæða og þar með töluvert fleiri þingsæti en næststærsti flokkurinn, það er öfgahægriflokkurinn AfD. Kannanir bentu reyndar ekki til þessarar niðurstöðu. Síðasta könnun INSA fyrir kosningarnar sýndi Kristilega demókrata til dæmis með 27 prósenta fylgi en AfD 26 prósent. Svipuð staða birtist í öðrum könnunum á lokaspretti kosningabaráttunnar. Búist er við því að Reiner Haseloff haldi forsætisráðherrastólnum í Sachsen-Anhalt en sigurinn þykir afar þýðingarmikill fyrir Kristilega demókrata. Paul Ziemiak, framkvæmdastjóri flokksins, segir skilaboðin skýr. Kristilegir demókratar hafi fengið sterkt umboð, flokkurinn sé langsterkasta stjórnmálaafl sambandsríkisins og niðurstaðan sé stórkostleg. Tilefni til bjartsýni Flokknum hefur gengið nokkuð illa í undanförnum ríkisþingskosningum en þetta voru síðustu slíku kosningarnar áður en kosið er á þýska sambandsþingið í september. Það verða fyrstu kosningar Kristilegra demókrata án Merkel í leiðtogasætinu í sextán ár. Armin Laschet, forsætisráðherra Norðurrín-Vestfalíu leiðir flokkinn. Könnun INSA sem birt var á föstudag sýndi Kristilega demókrata með 26 prósenta fylgi á landsvísu. Jafnaðarmenn með sautján prósent, AfD og Frjálsir demókratar tólf prósent hvor en Græningjar mælast næststærstir með 21 prósent.
Þýskaland Kosningar í Þýskalandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Hann hættir bara ekki” Fréttir Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Innlent Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Innlent Evrópa böðuð bleiku Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Innlent Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Innlent Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Innlent Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Erlent Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Sjá meira