Rýmingaráætlun ekki tilbúin en flóttaleiðir þó margar og greiðar Kristín Ólafsdóttir og Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifa 1. mars 2021 15:28 Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum. Vísir/Egill Bæjarstjóri í Vogum hefði gjarnan viljað að rýmingaráætlun fyrir Suðurnes væri tilbúin, nú þegar jarðskjálftar skekja svæðið. Sem betur fer séu þó greiðar flóttaleiðir frá Vogum til margra átta, komi til eldgoss. Þá séu jarðskjálftarnir alltaf jafnóþægilegir þegar þeir ríða yfir.
Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum segir í samtali við fréttastofu að það hafi vissulega ekki farið fram hjá nokkrum einasta manni að mikil skjálftavirkni sé á svæðinu. „Við finnum mikið fyrir þessu hér þegar skjálftarnir koma. Að því sögðu finnst mér staðan vera í jafnvægi, ef maður getur notað það orð. Það er erfitt að búa við þetta að því leytinu til að það er alltaf léleg öryggistilfinning þegar þetta gengur yfir en við erum upp til hópa með fólk sem tekur þessu af æðruleysi og tekur þessu með raunsæissjónarmiði,“ segir Ásgeir. „Þetta er misjafnt eftir því hve jarðskjálftarnir eru stórir og þetta er alltaf jafnóþægilegt. Manni bregður yfirleitt við þegar þeir koma en að því sögðu reynir maður bara að treysta vísindasamfélaginu fyrir því að þetta sé ekkert meira en þetta.“ Veit ekki af neinum sem hefur forðað sér Veistu til þess að fólk hafi gripið til viðbragða, pakkað í töskur eða hreinlega farið úr bænum? „Ég veit ekki um neinn sem hefur forðað sér,“ segir Ásgeir. „En ég veit um einhverja sem hafa haft tilbúnar töskur, kannski aðallega lyf og slíkt sem fólk er háð, sem er bara jákvætt og eðlilegt. Aðalatriðið og mikilvægast er að kynna sér vel leiðbeiningar frá almannavörnum um viðbrögð, bæði varðandi það ef þarf að rýma svæðið og varðandi lausa muni og slíkt.“ Hefði gjarnan viljað sjá rýmingaráætlunina miklu fyrr Rýmingaráætlun fyrir Grindavík er tilbúin en slík áætlun er enn í vinnslu fyrir restina af Suðurnesjum. „Okkar [rýmingaráætlun] er ekki tilbúin en hér eru hins vegar greiðar leiðir, flóttaleiðir til margra átta og greiðar samgöngur og á meðan ekki eru eldsumbrot er engin hætta á ferðum hvað það varðar,“ segir Ásgeir. En er ekki fullseint í rassinn gripið að fara að vinna að rýmingaráætlun núna þegar þessar jarðhræringar hafa staðið yfir í heilt ár? „Við hefðum gjarnan viljað sjá þessa rýmingaráætlun miklu fyrr og höfum þrýst á það lengi. Þetta er auðvitað mikil vinna sem tekur langan tíma. Frumkvæðið og utanumhaldið er hjá lögreglu og almannavörnum, sveitarfélögin hafa öll hér á svæðinu þrýst á um þetta. Það er samt betra seint en aldrei og vonandi verður hún tilbúin fyrr en síðar,“ segir Ásgeir.
Vogar Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Tengdar fréttir Telur ekki þörf á því að fólk pakki niður í töskur Jarðskjálftafræðingur telur ekki þörf á því að fólk pakki niður í töskur til að geta yfirgefið heimili sín í flýti. Borið hefur á umræðu um slíkt á samfélagsmiðlum meðal íbúa á suðvesturhorninu, þar sem mikil jarðskjálftahrina hefur staðið yfir síðan á miðvikudag. 1. mars 2021 14:29 Áhersla lögð á að koma réttum upplýsingum til skelkaðra íbúa af erlendum uppruna Bæjarstjórinn í Grindavík segir að mikil hræðsla hafi gripið um sig hjá fólki af erlendum uppruna í samfélaginu vegna jarðskjálftana undanfarið. Margir hafi litla reynslu af jarðskjálftum og eina þekkingin komi frá fréttamyndum af miklum hörmungum í kjölfar þeirra. Áhersla sé lögð á að koma réttum upplýsingum til hópsins. 1. mars 2021 12:33 Afar hæpið að íslensk hús hrynji vegna jarðskjálfta Lágreist hús með léttum þökum, sem mjög algeng eru á Íslandi, eru sérstaklega heppileg með tilliti til jarðskjálfta, að sögn jarðskjálftaverkfræðings. Þá finni íbúar húsa á hörðu undirlagi minna fyrir jarðskjálftum en þeir sem búa þar sem undirlagið er mýkra. 1. mars 2021 12:04 Snarpur skjálfti á Reykjanesi Snarpur skjálfti fannst vel á suðvesturhorninu, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu, um klukkan 13:50 í dag. Skrifstofur fréttastofu á Suðurlandsbraut í Reykjavík hristust vel en skjálftinn varði þó nokkuð skemur en stóru skjálftarnir sem urðu í nótt og á laugardagsmorgun. 1. mars 2021 13:53 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Innlent Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Innlent Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Innlent Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Innlent „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Innlent Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Innlent Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Innlent Segja valdarán framið og kirkju aðventista klofna Innlent Réðst á barn sem gerði dyraat Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Enn kröftugt gos úr einum gíg Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Velkomin í Verbúðina II Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Bjarni vill taka daginn snemma Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Tvö manndráp á skömmum tíma „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Réðst á barn sem gerði dyraat Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Myndaði annan mann í sturtuklefanum Tíðni manndrápa í takt við fjölgun mannfjölda Sjá meira
Telur ekki þörf á því að fólk pakki niður í töskur Jarðskjálftafræðingur telur ekki þörf á því að fólk pakki niður í töskur til að geta yfirgefið heimili sín í flýti. Borið hefur á umræðu um slíkt á samfélagsmiðlum meðal íbúa á suðvesturhorninu, þar sem mikil jarðskjálftahrina hefur staðið yfir síðan á miðvikudag. 1. mars 2021 14:29
Áhersla lögð á að koma réttum upplýsingum til skelkaðra íbúa af erlendum uppruna Bæjarstjórinn í Grindavík segir að mikil hræðsla hafi gripið um sig hjá fólki af erlendum uppruna í samfélaginu vegna jarðskjálftana undanfarið. Margir hafi litla reynslu af jarðskjálftum og eina þekkingin komi frá fréttamyndum af miklum hörmungum í kjölfar þeirra. Áhersla sé lögð á að koma réttum upplýsingum til hópsins. 1. mars 2021 12:33
Afar hæpið að íslensk hús hrynji vegna jarðskjálfta Lágreist hús með léttum þökum, sem mjög algeng eru á Íslandi, eru sérstaklega heppileg með tilliti til jarðskjálfta, að sögn jarðskjálftaverkfræðings. Þá finni íbúar húsa á hörðu undirlagi minna fyrir jarðskjálftum en þeir sem búa þar sem undirlagið er mýkra. 1. mars 2021 12:04
Snarpur skjálfti á Reykjanesi Snarpur skjálfti fannst vel á suðvesturhorninu, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu, um klukkan 13:50 í dag. Skrifstofur fréttastofu á Suðurlandsbraut í Reykjavík hristust vel en skjálftinn varði þó nokkuð skemur en stóru skjálftarnir sem urðu í nótt og á laugardagsmorgun. 1. mars 2021 13:53