Hálf öld frá brunanum á Þingvöllum Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 10. júlí 2020 13:00 „
Mikill harmur er kveðinn að íslenzku þjóðinni.“ Þetta voru upphafsorð forsíðurfréttar Vísis 10. júlí árið 1970 þar sem þjóðinni voru sögð þau sorgartíðindi að Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, Sigríður Björnsdóttir, eiginkona hans og Benedikt Vilmundarson, fjögurra ára dóttursonur þeirra hefðu látist í eldsvoða á Þingvöllum. Minningarathöfn verður haldin á Þingvöllum í dag til minnast þess að hálf öld er liðin frá brunanum sem var mikið reiðarslag fyrir þjóðina. Forsætisráðherrahjónin, ásamt dóttursyni þeirra, höfðu farið 9. júlí 1970 í ráðherrabústaðinn á Þingvöllum til að dvelja þar yfir nótt. Benedikt Vilmundarson var fjögurra ára þegar hann lést með afa sínum og ömmu í brunanum á Þingvöllum. Hann var sonur alþingismannanna Valgerðar Bjarnadóttur og Vilmundar Gylfasonar.Vísir Hollenskir ferðamenn voru fyrstir á vettvang brunans. Í nokkurri fjarlægð töldu þeir í fyrstu að um varðeld væri að ræða en við nánari athugun kom allt fyrir ekki. Þegar þeir komu að bústaðnum logaði eldur út úr stofuglugga í suðausturhorni hússins og var greinilegt að mikill eldur var í húsinu. Konungsbústaðurinn, svokallaði, brann til grunna. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, býður í dag þingmönnum á sérstaka minningarathöfn á þessum sorglegu tímamótum. Minningarsteinn um þennan atburð var reistur þar sem húsið stóð árið 1971. Efnt var til minningarathafnar um eldsvoðann og fráfall forsætisráðherrahjónanna og dóttursonar þeirra árið 1995 þegar 25 ár voru liðin frá atburðinum. Athöfnin í dag mun fara fram við umræddan minningarstein klukkan 15.00. Í sorgarorðum þáverandi forseta Íslands, Kristjáns Eldjárns, segir að slíkur atburður sé hörmulegri en svo að orðum verði yfir komið. Í einu vetfangi hafi í burtu verið svipt traustum forystumanni sem um langan aldur hafi staðið í fylkingarbrjósti og verið í fyrirsvari í þjóðlífinu. Bjarni Benediktsson var forsætisráðherra frá 1963 og fram að andláti árið 1970. Benedikt Vilmundarson, sem fórst með afa sínum og ömmu í brunanum, 4 ára að aldri, var sonur Valgerðar Bjarnadóttur og Vilmundar Gylfasonar, ráðherranna fyrrverandi. Bjarni og Sigríður gengu í hjónaband 1943 og áttu fjögur börn saman.
Þingvellir Tímamót Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira