Hátíðin Flúðir um versló mun ekki fara fram í ár. Þetta kemur fram í færslu á facebooksíðu hátíðarinnar.
Þar segir að ákvörðunin sé þungbær en vonast sé til að hátíðin komi bæði stærri og sterkari til baka að ári liðnu.
„Verum örugg og hugum mjög mjög vel að persónulegum smitvörnum. Látum ekki pestina hafa meira af okkur,“ segir einnig í tilkynningunni.
Bergsveinn Theodórsson, skipuleggjandi hátíðarinnar, segir í samtali við RÚV að í ljósi aukninga smita í samfélaginu vilji skipuleggjendur ekki stuðla að því að fólk komi saman.
Tvö kórónuveirusmit greindust á listahátíðinni LungA sem fram fór á Seyðisfirði um helgina. Fram kemur í tilkynningu frá LungA að ekki sé um hópsmit að ræða, en gestir hátíðarinnar eru hvattir til að fylgjast með einkennum og fara í sýnatöku ef einkenni koma fram.
Í samtali við mbl.is segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að tillögur að aðgerðum innanlands séu í skoðun. Spurður hvort takmarkanir verði settar á til að koma í veg fyrir að þjóðhátíð og aðrar hátíðir um verslunarmannahelgina fari fram segist hann ekki geta sagt til um það.
Hann segir rannsóknir sýna að bólusetning veiti góða vernd gegn alvarlegum sjúkdómum og dauðsföllum, eða um 90 prósent. Hins vegar sé veiran mjög smitandi og alvarlegt ástand gæti skapast ef margir smituðust, þó að eiginlegt hlutfall alvarlega veikra væri lágt.