Aðgerðum gegn fjölmiðlum á Íslandi fari fjölgandi Snorri Másson og Árni Sæberg skrifa 21. janúar 2022 20:45 Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands Vísir/Vilhelm Vefurinn Mannlíf.is lá niðri fram á miðjan dag eftir að brotist var inn á skrifstofur miðilsins í nótt og öllu eytt út af síðunni. Formaður Blaðamannafélags Íslands segir innbrotið eitt alvarlegasta dæmið um atlögu gegn fjölmiðlum hér á landi um nokkra hríð.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamanna félags Íslands, segir félagið líta atvikið alvarlegum augum og vonast til þess að lögreglan geri slíkt hið sama. „Þetta er ekki eins og hvert annað innbrot, þetta er innbrot í fjölmiðil, með virðist vera þann ásetning að hafa áhrif á starfsemi miðilsins, að lama starfsemi hans og eyða út efni sem þegar hefur verið skrifað,“ segir hún. Aðgerðir gegn fjölmiðlum áhyggjuefni Sigríður Dögg segir aðgerðir gegn fjölmiðlum á Íslandi hafa sést í auknum mæli að undanförnu og að það sé áhyggjuefni út af fyrir sig. „Við sjáum aðför Samherja gegn Kveiksmönnum, gegn Helga Seljan, þar sem var njósnað um fólk og því fylgt eftir, skipulögð áróðursstarfsemi gegn þeim. En þetta er af öðrum og jafnvel enn alvarlegri toga þegar um er að ræða innbrot í fjölmiðil og skemmdarverk hreinlega,“ segir hún. „Manni líður eins og manni hafi verið misþyrmt“ Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs telur að um skipulagða atlögu gegn miðlinum hafi verið að ræða. „Þetta eru menn sem kunna til verka. Það liggur alveg fyrir. Þeir fara inn á vefinn, eyða og hafa fyrir því að tæma úr ruslinu og eyða greinunum. Það er engin tilviljun fólgin í þessu,“ sagði hann í samtali við fréttastofu í dag. Eðli málsins samkvæmt er Reyni illa brugðið eftir atburði næturinnar. „Það eina sem ég get sagt er að manni líður eins og manni hafi verið misþyrmt eða stunginn í bakið. En ég heiti því að við munum ná í gaurinn á hinum endanum.“ Rætt var við þau Reyni og Sigríði Dögg í kvöldfréttum Stöðvar 2 og sjá má innslagið í spilaranum hér að neðan:
Fjölmiðlar Lögreglumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira