Klara í The Kardashians Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 5. júlí 2022 11:00 Rödd Klöru hefur ómað í síðustu þáttum af The Kardashians. Samsett/Frederick M. Brown/Getty Images Söngkonan Klara Elias hefur verið að gera öfluga hluti í tónlistarheiminum að undanförnu. Ásamt því að syngja Þjóðhátíðarlagið í ár og koma fram víða í sumar má heyra rödd Klöru syngja í nýjustu Kardashian raunveruleikaþáttunum. Blaðamaður fékk að taka púlsinn á Klöru og forvitnast um samstarfið við eina frægustu fjölskyldu í heimi. „
Ég er búin að vera semja tónlist fyrir sjónvarpsþætti í nokkur ár og þá oftast fyrir fyrirtæki sem vinnur mikið fyrir raunveruleikasjónvarp. Ég geri mest af því efni sem ég sem fyrir sjónvarp með pródúser í LA sem heitir Tal Meltzer. Þetta fyrirtæki hefur reglulega pantað frá okkur nokkur lög fyrir þætti sem þeir eru að sjá um,“ segir Klara og bætir við að verkefnin séu sannarlega fjölbreytt. „Ég hef átt lög í Selling Sunset, Queer Eye For The Straight Guy, Love Island, NFL play-offs bara til að nefna einhverja. Svo nýlega tóku þeir við Kardashians þáttunum og eru búnir að vera að velja lög sem ég hef samið og er reyndar líka að syngja.“ Aðspurð hvernig tilfinningin sé að heyra rödd sína í svona vinsælum þáttum segir Klara: „Mér fannst þetta mjög skemmtilegt. Þetta er náttúrulega einn vinsælasti raunveruleikaþáttur í heimi og meira að segja ég hef horft á einn og einn þátt.“ Hún segir að það sé óvanalegt fyrir hana. „Ég horfi nefnilega ekki á neina raunveruleikaþætti sjálf svo til að sjá lögin mín í þessum þáttum bíð ég eftir að fá senda upptöku frá umboðsmanninum mínum sem er forfallinn raunveruleikaþátta nörd,“ segir Klara og hlær. Hún bætir við að þættirnir fari ekkert fram hjá manni þó maður fylgist kannski ekki með allri seríunni. View this post on Instagram A post shared by Klara Elias (@klaraelias) En hefur þú einhvern tíma hitt Kardashian meðlim? „Ég hitti einu sinni Kim í veislu fyrir ESPY awards sem var haldið í Playboy mansion fyrir mörgum árum síðan. Ég spjallaði vissulega ekkert við hana meira en að heilsast ef ég man rétt.“ View this post on Instagram A post shared by Kris Jenner (@krisjenner) Að lokum er það stóra spurningin. Hver er uppáhalds Kardashian/Jenner meðlimurinn þinn? „Ég held að Kris Jenner hljóti að hafa endurskilgreint merkingu þess að búa til sítrónusafa úr sítrónum. Mér finnst hún geggjuð. Hún er eldklár og hugrökk og eftir því sem ég get séð tilbúin að vaða eld og brennistein fyrir stelpurnar sínar.“
Tónlist Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Tengdar fréttir Öll augu á Kim og Pete sem birta nýjar paramyndir á ströndinni Ástarsamband raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian og grínistans Pete Davidson hefur vakið mikla forvitni fjölmiðla vestanshafs en parið fór leynt með samband sitt í fyrstu. 13. júní 2022 15:32 Kim skein skærast í kjól frá Marilyn Monroe Tískuviðburður ársins, Met Gala, fór fram með pomp og prakti í gærkvöldi á Metropolitan safninu í New York. Þar mætast listir, menning og tíska á óaðfinnanlegan hátt og stórstjörnur heimsins ganga rauða dregilinn í einhverjum dýrustu flíkum heims. 3. maí 2022 11:04 Klara í fyrsta sæti íslenska listans Söngkonan Klara Elias situr í fyrsta sæti íslenska listans þessa vikuna með Þjóðhátíðarlagið Eyjanótt. Lagið kom út 7. júní síðastliðinn og hefur óðfluga hækkað sig upp listann að undanförnu. 2. júlí 2022 18:01 Klara frumsýnir myndbandið við Þjóðhátíðarlagið Eyjanótt Lífið á Vísi frumsýnir tónlistarmyndband Þjóðhátíðarlagsins í ár, Eyjanótt. Saga Sig er leikstjóri myndbandsins, Stella Rósenkranz framleiðandi og Klara Elias listrænn stjórnandi. Lagið er flutt af Klöru og samið af henni og Ölmu Goodman. 10. júní 2022 12:01 Mest lesið Clooney mælti með handtöku Netanyahu Lífið Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Lífið Keppendur í Ungfrú Ísland 2024 Lífið Með átján husky hunda á heimilinu og mæla með Lífið Stjörnulífið: Löng helgi, hátíðarsýning og tónleikar Lífið Glæsihús Gerðar í Blush aftur á sölu Lífið Forðast drama eins og heitan eldinn Lífið Endurkast sólarljóss jafn skaðlegt og beint sólarljós Lífið samstarf Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar Lífið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Fleiri fréttir Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Sjá meira
Öll augu á Kim og Pete sem birta nýjar paramyndir á ströndinni Ástarsamband raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian og grínistans Pete Davidson hefur vakið mikla forvitni fjölmiðla vestanshafs en parið fór leynt með samband sitt í fyrstu. 13. júní 2022 15:32
Kim skein skærast í kjól frá Marilyn Monroe Tískuviðburður ársins, Met Gala, fór fram með pomp og prakti í gærkvöldi á Metropolitan safninu í New York. Þar mætast listir, menning og tíska á óaðfinnanlegan hátt og stórstjörnur heimsins ganga rauða dregilinn í einhverjum dýrustu flíkum heims. 3. maí 2022 11:04
Klara í fyrsta sæti íslenska listans Söngkonan Klara Elias situr í fyrsta sæti íslenska listans þessa vikuna með Þjóðhátíðarlagið Eyjanótt. Lagið kom út 7. júní síðastliðinn og hefur óðfluga hækkað sig upp listann að undanförnu. 2. júlí 2022 18:01
Klara frumsýnir myndbandið við Þjóðhátíðarlagið Eyjanótt Lífið á Vísi frumsýnir tónlistarmyndband Þjóðhátíðarlagsins í ár, Eyjanótt. Saga Sig er leikstjóri myndbandsins, Stella Rósenkranz framleiðandi og Klara Elias listrænn stjórnandi. Lagið er flutt af Klöru og samið af henni og Ölmu Goodman. 10. júní 2022 12:01