Hefði verið heppilegra að sleppa símtölunum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 1. mars 2021 12:04 Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, óskaði eftir því að málið yrði tekið fyrir. vísir/Vilhelm Dómsmálaráðherra var kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun vegna samskipta sinna við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir Ásmundarsalarmálið. Þingmaður Pírata telur að samskiptin hefðu verið heppilegri í formlegri búning.
Líkt og fram hefur komið ræddi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra tvisvar við Höllu Bergþóru Björnsdóttur lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag eftir lögregla tilkynnti fjölmiðlum um sóttvarnarbrot í samkvæmi í Ásmundarsal, þar sem fjármálaráðherra var staddur. Dómsmálaráðherra hefur sagst hafa hringt í lögreglustjóra til þess að spyrjast fyrir um verklagsreglur um dagbókarfærslur lögreglu og persónuverndarsjónarmið. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, var boðuð á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í morgun.vísir/vilhelm Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, fór fram á að Áslaug Arna yrði kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis til þess að greina nánar frá samskiptunum. „Vegna þess að þarna erum við að horfa á þessa fínu línu sem er á milli eftirlitshlutverks ráðherrans og þess sem geta verið óeðlileg afskipti af rannsókn sem er í gangi hjá lögreglu. Það er eitthvað sem dómsmálaráðherra þarf alltaf að hafa í huga og eftirlitsnefnd þingsins fylgist með þegar svona mál koma upp,“ segir Andrés Ingi. Hann segir yfirferð nefndarinnar hafa verið nokkuð yfirgripsmikila og að ráðherra hafi svarað spurningum greiðlega, svörin hafi verið í samræmi við fyrri svör ráðherra í fjölmiðlum. „Hún hafi verið að bregðast við fyrirspurnum fjölmiðla og ekki verið með á hreinu hvernig verklagið er við þessa upplýsingagjöf og verið að fylla inn í það,“ segir Andrés. „En í ljósi þess sem kom fram á fundinum var ákveðið að boða lögreglustjórann líka á fund til að fá hennar sýn á þessi samskipti.“ Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, verður boðuð á fund nefndarinnar.vísir/Vilhelm Halla Bergþóra verður því kölluð fyrir nefndina á næstunni. Andrés Ingi telur eðlilegt að ráðherra haldi samskiptum formlegum þegar þau varða einstök mál og þá sérstaklega þegar þau tengjast ráðherra með einherjum hætti. „Ráðherra tjáði sig ekkert um málið í desember út á við sem er eðlilegt í ljósi stöðunnar en með sömu rökum hefði sennilega verið heppilegra að sleppa þessum milliliðalausu símtölum við lögreglustjórann og færa upplýsingaleit ráðherrans í formlegri búning á milli embættismanna. En eins og ég segi eigum við eftir að skoða þetta nánar í nefndinni til að komast að einhverri endanlegri niðustöðu,“ segir Andrés Ingi.
Ráðherra í Ásmundarsal Lögreglumál Alþingi Lögreglan Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Erlent Fleiri fréttir Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Sjá meira