Lögregla raðar saman púslunum í Borgarholtsskóla Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. janúar 2021 16:44 Nemendur og starfsfólk í Borgarholtsskóla er að sögn skólameistara í áfalli vegna atburða dagsins. Vísir/Vilhelm Að minnsta kosti sex manns hafa þurft að leita aðstoðar á slysadeild eftir að til átaka kom í Borgarholtsskóla í Grafarvogi í hádeginu í dag. Lögregla segir í tilkynningu að meiðsli þessara sex liggi ekki fyrir. Elín Agnes Kristínardóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfestir í samtali við Vísi að engin þeirra slösuðu séu í lífshættu eða alvarlega slasaðir.
Rannsókn málsins er sögð á frumstigi og ekki liggja fyrir upplýsingar um hve margir hafa stöðu grunaðs í málinu. Einn var leiddur í burtu í handjárnum úr Borgarholtsskóla. Tilkynning um átökin barst lögreglu klukkan 12:37. Skólastjóri segir árásarmenn hafa verið vopnaðir bareflum eins og hafnaboltakylfum og mjög löngum og stórum hnífum. Elín Agnes sagðist í samtali við Vísi ekki geta tjáð sig nánar um málið að svo stöddu. Reikna mætti með því að línur í málinu myndu skýrast í kvöld og á morgun. Í samtölum fréttastofu við nemendur í Borgarholtsskóla þá virðist almennur skilningur á atburðarásinni vera á þá leið að nokkrir vopnaðir aðilar hafi komið í Borgarholtsskóla til að leita uppi aðila. Sá hafi að sögn nemenda ekki mætt til fundar við þá utan við skólann og þeir því ætlað að leita hann uppi. Að minnsta kosti einn þeirra sex sem fóru á slysadeild var fluttur á sjúkrabörum út úr skólanum. Þá hafa myndir verið í gangi á samfélagsmiðlum þar sem sjá má einn aðila blóðugan um höfuð. Muni breyta íslensku samfélagi til frambúðar Ársæll Guðmundsson skólameistari í Borgarholtsskóla lýsti atburðarásinni í samtali við fréttastofu á vettvangi í dag. Vopnaðir aðilar hefðu komið inn í skólann og slagsmál brotist út. Um grafalvarlegt mál væri að ræða sem yrði til þess að breyta ýmsu í íslensku samfélagi. „Þetta er líka aðför að þessu opna og lýðræðislega skólakerfi sem Ísland hefur haft og þann frið sem við höfum haft í íslensku samfélagi. Þetta er mjög alvarlegt mál og verður til að breyta ýmsu í íslensku samfélagi,“ segir Ársæll. Hann lýsti því hvernig slagsmálin hefðu brotist út á einum ganginum til að byrja með. Starfsmenn hefðu brugðist mjög hratt við. Lögregla hefði mætt á svæði í flýti og öllum komið í skjól. Skólinn hafi svo verið rýmdur og grandskoðaður. Leitað um alla ganga en lögregla notaðist við leitarhunda í nágrenni skólans. Skólasamfélagið þurfi að fara yfir verkferla Ársæll segir skólastjórnendur í framhaldsskólum hafa rætt um öryggi í skólum í fjölda ára vegna atburða erlendis og hvernig íslensku skólarnir séu í stakk búnir hvað það varði. Framhaldsskólar eru almennt opnir og engin öryggisgæsla. Vísar hann þar til skyndilegra árása á skóla, sem gerist til að mynda með reglulegu millibili í Bandaríkjunum, þar sem vopnaðir aðilar hafa ráðist til atlögu með skelfilegum afleiðingum. „Hér í Borgarholtsskóla eru mjög margir inngangar í skólann. Við höfum lokað mjög mörgum þessara innganga. Svo kemur Covid og þá er það orðið kostur að hafa marga innganga, til að geta dreit nemendum um skólann. En reynist svo ókostur þegar svona gerist. við munum allt skólasamfélagið, ekki bara í Borgarholtsskóla, fara yfir alla okkar verkferla.“
Vopnuð árás í Borgarholtsskóla Reykjavík Skóla - og menntamál Lögreglumál Tengdar fréttir Skólastjórinn í Borgarholtsskóla: Árásin verði til að breyta ýmsu í íslensku samfélagi Ársæll Guðmundsson skólameistari segir að árás í Borgarholtsskóla sé grafalvarlegt mál og muni verða til þess að breyta íslensku samfélagi. Sex voru fluttir á slysadeild eftir atburðina sem áttu sér stað upp úr klukkan eitt í dag. 13. janúar 2021 15:17 Sex fluttir á slysadeild eftir árás í Borgarholtsskóla Sex voru fluttir á slysadeild á öðrum tímanum í dag eftir að árás var gerð í Borgarholtsskóla. Þetta staðfestir varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í samtali við Vísi. Einn var leiddur út úr skólanum í járnum. 13. janúar 2021 13:03 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Sjá meira
Skólastjórinn í Borgarholtsskóla: Árásin verði til að breyta ýmsu í íslensku samfélagi Ársæll Guðmundsson skólameistari segir að árás í Borgarholtsskóla sé grafalvarlegt mál og muni verða til þess að breyta íslensku samfélagi. Sex voru fluttir á slysadeild eftir atburðina sem áttu sér stað upp úr klukkan eitt í dag. 13. janúar 2021 15:17
Sex fluttir á slysadeild eftir árás í Borgarholtsskóla Sex voru fluttir á slysadeild á öðrum tímanum í dag eftir að árás var gerð í Borgarholtsskóla. Þetta staðfestir varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í samtali við Vísi. Einn var leiddur út úr skólanum í járnum. 13. janúar 2021 13:03