Létt yfir Lækjargötu eftir niðurrif Heimir Már Pétursson skrifar 23. júní 2022 19:45 Nú er hægt að aka og ganga beggja megin Vonarstrætis frá Lækjargötu. Stöð 2/Einar Það hefur létt mikið yfir Lækjargötunni eftir að svört grindverk og hindranir voru fjarlægðar. Gatan á hins vegar eftir að taka enn meiri stakkaskiptum á komandi árum þegar fyrsta áfanga borgarlínu verður lokið.
Það var einhvern tíma vel fyrir tíma kórónuveirufaraldursins sem tveimur akreinum í Lækjargötu til suðurs var lokað og þær girtar af vegna framkvæmda við nýtt hótel. Fyrir nokkrum dögum voru akreinarnar loksins opnaðar aftur. Svona leit þetta svæði út í mörg ár þar sem svört grindverk í kringum hótel í byggingu og alls kyns aðrar hindranir þrengdu ekki aðeins að umferð bíla og strætisvagna heldur einnig gangandi og hjólandi vegfarenda. Það var því mun léttara yfir mannlífinu í Lækjargötu í dag enda miðborgin full af erlendum ferðamönnum innan um nú greiðfærari umferðina. Alexandra Briem nýkjörin formaður umhverfis- og skipulagsráðs er hæst ánægð með nýja hótelið og greiðari gönguleiðir.Stöð 2/Einar Alexandra Briem var kjörin tímabundið formaður umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar í dag í afleysingum fyrir Dóru Björt Guðjónsdóttur oddvita Pírata og er hæstánægð. „Já, já þið sjáið hvað þetta er bjart og opið og það er miklu meira gaman að labba leiðina hérna í Lækjargötunni núna. Þetta er mikill munur. Húsið er líka mjög vel heppnað, fallegt og fellur mjög vel að götumyndinni. Ég er rosaánægð með þetta. Gaman að sjá þetta,“ sagði Alexanda. Þetta er þó ekki framtíðarmynd Lækjargötunnar. Hún er hluti af fyrsta áfanga borgarlínu frá Kársnesinu og fleiri stöðum inn í miðborgina. Vinstra megin á myndinni sjáum við akreinarnar sem nú hafa verið opnaðar aftur eftir mörg ár. Breið gangstétt er fyrir framan nýja hótelið.Stöð 2/Einar „Framtíðarsýnin er að þetta verði borgargata með aðeins hægari umferð. Meira til að ganga eftir, það verði borgarlína, ekki þessi gegnumstreymisæð sem hún er búin að vera. Þannig að við förum vonandi að sjá einhverjar langtímabreytingar á þessu. Það er nú samt vissulega gaman að opna þetta núna og fá gönguleiðina betri,“ segir Alexandra. Með komu borgarlínunnar muni vonandi færri þurfa vera á bíl til að komast í miðborgina. Framkvæmdir við hana hefjist sennilega á næstu tveimur til þremur árum. Nýja hóteliðgerbreytir hins vegar götumynd bæði Vonarstrætis og Lækjargötu. Það er kannski fyrst núna þegar búið er að rífa grindverkið utan af horninu á hótelinu sem við sjáum í raun og veru hvernig það lítur út. Ég er viss um að þeir sem koma til Reykjavíkur í fyrsta skipti eftir nokkur ár halda að svona að hafi þetta alltaf verið.
Reykjavík Borgarlína Tengdar fréttir Gamli turninn á Lækjartorgi fær nýtt hlutverk Gamli söluturninn á Lækjartorgi, sem hefur lengi vel verið eitt helsta kennileiti miðbæjarins, fær nýtt hlutverk á næstunni þegar honum verður breytt í hljómturn en til stendur að gera turninn að miðpunkt tónlistar í miðbænum. 12. apríl 2022 11:42 Háþróuð „Borgaralind“ á gerbreyttu Lækjartorgi Lækjartorg tekur miklum breytingum á næstu árum, þar sem gangandi vegfarendur verða settir í forgang. 5. mars 2022 06:59 Lækjartorg verður inngangurinn að Kvosinni Lækjartorg mun taka stakkaskiptum á næstu misserum og verður lyft upp á spennandi og áhugaverðan hátt samkvæmt tillögunni Borgaralind eftir Sp(r)int Studio og Karrens en Brands, sem bar sigur úr býtum í hönnunarsamkeppni um Lækjartorg og aðliggjandi gatnarými. Reykjavíkurborg vekur athygli á þessu í tilkynningu. 4. mars 2022 11:08 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Sjá meira
Gamli turninn á Lækjartorgi fær nýtt hlutverk Gamli söluturninn á Lækjartorgi, sem hefur lengi vel verið eitt helsta kennileiti miðbæjarins, fær nýtt hlutverk á næstunni þegar honum verður breytt í hljómturn en til stendur að gera turninn að miðpunkt tónlistar í miðbænum. 12. apríl 2022 11:42
Háþróuð „Borgaralind“ á gerbreyttu Lækjartorgi Lækjartorg tekur miklum breytingum á næstu árum, þar sem gangandi vegfarendur verða settir í forgang. 5. mars 2022 06:59
Lækjartorg verður inngangurinn að Kvosinni Lækjartorg mun taka stakkaskiptum á næstu misserum og verður lyft upp á spennandi og áhugaverðan hátt samkvæmt tillögunni Borgaralind eftir Sp(r)int Studio og Karrens en Brands, sem bar sigur úr býtum í hönnunarsamkeppni um Lækjartorg og aðliggjandi gatnarými. Reykjavíkurborg vekur athygli á þessu í tilkynningu. 4. mars 2022 11:08