Ellefu hafa kært talningu í Norðvesturkjördæmi Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 13. október 2021 12:00 Björn Leví Gunnarsson fulltrúi Pírata í undirbúningskjörbréfanefnd Vísir/Vilhelm Alls hafa ellefu manns kært framkvæmd talningar og meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi. Sex frambjóðendur og fimm almennir borgarar. Fulltrúi Pírata í undirbúningskjörbréfanefnd segir að óskað verði eftir gögnum frá Lögreglunni á Vesturlandi í dag.
Sífellt fleiri bætast í hóp þeirra sem hafa kært framkvæmd talningar og meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi eftir síðustu Alþingiskosningar. Nú þegar hefur komið fram að allir frambjóðendur sem duttu út eftir síðari talningu í Norðvesturkjördæmi hafa kært. Þá hafa fimm almennir borgarar einnig sent kæru til Alþingis. Nú þegar hefur komið fram að Katrín Oddsdóttir og Sigurður Hr. Sigurðsson úr Stjórnarskrárfélaginu hafi kært og Þorvaldur Gylfason prófessor. Björn Leví Gunnarsson fulltrúi Pírata í undirbúningskjörbréfanefnd, sem hefur það hlutverk að taka afstöðu til kæranna, býst við að óskað verði eftir gögnum frá lögreglunni á Vesturlandi á fundi nefndarinnar í dag. „Ég býst við að beiðni til lögreglu um upplýsingar verði send eftir fund nefndarinnar í dag,“segir Björn. Hafsteinn Þór Hauksson dósent í Lagadeild Háskóla Íslands sagði á fundi undirbúningakjörbréfnefndar á mánudag að hann sæi ekkert því til fyrirstöðu að þingið rannsaki sjálft kjörgögn en fái líka gögn frá lögreglu. Björn segir að ef tilefni sé til muni nefndin sjálf hefja slíka rannsókn. „Það er hluti spurninga til lögreglunnar. Ef það er eitthvað athugavert í gögnum frá þeim þá getur verið að við þurfum að skoða efnið sjálf t.d. úr eftirlitsmyndavélum við talningastað,“ segir Björn. Björn býst við að rannsókn nefndarinnar hefjist á föstudag en mikil vinna hafi farið í undirbúning. „Það er búið að vera að reyna að setja upp vinnu nefndarinnar þannig að hún stemmi við dóm mannréttindadómstólsins. Við þurfum að tékka í öll slík box,“ segir Björn. Björn býst við að starfsreglur nefndarinnar verði birtar á vef Alþingis í dag en þingforseti hafi þegar staðfest þær.
Alþingiskosningar 2021 Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Alþingi Tengdar fréttir Útilokar að ágallarnir leiði til alþingiskosninga á landsvísu Útilokað er að Alþingiskosningarnar verði dæmdar ólöglegar á landsvísu vegna meðferðar kjörgagna í Norðvesturkjördæmi að mati dósents í lögfræði. Mikilvægt sé að Alþingi rannsaki og undirbúi niðurstöðu sína að kostgæfni. 11. október 2021 20:20 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira
Útilokar að ágallarnir leiði til alþingiskosninga á landsvísu Útilokað er að Alþingiskosningarnar verði dæmdar ólöglegar á landsvísu vegna meðferðar kjörgagna í Norðvesturkjördæmi að mati dósents í lögfræði. Mikilvægt sé að Alþingi rannsaki og undirbúi niðurstöðu sína að kostgæfni. 11. október 2021 20:20