Mótmæltu bólusetningum á Austurvelli Eiður Þór Árnason skrifar 7. desember 2021 20:26 Margt var um manninn á Austurvelli fyrr í kvöld. Vísir/Sigurjón Tugir manna voru samankomin á Austurvelli á sjöunda tímanum í kvöld til að mótmæla bólusetningarstefnu stjórnvalda. Beindust mótmælin einna helst gegn bólusetningum barna við Covid-19.
Mótmælin fóru friðsamlega fram og mátti sjá suma mótmælendur prýdda jólaskrauti. Þá báru aðrir uppi skilti með hinum ýmsu skilaboðum til stjórnvalda þar sem lýst var yfir óánægju með viðbrögð heilbrigðisyfirvalda við faraldrinum. Vörðuðu mörg skiltin sóttvarnaaðgerðir og bólusetningar barna. Klippa: Mótmæltu bólusetningum á Austurvelli Boðið hefur verið upp á bólusetningu gegn Covid-19 fyrir börn á aldrinum 12 til 15 ára hér á landi með bóluefni Pfizer frá því í ágúst. Bóluefnið er annað tveggja sem hefur verið samþykkt til notkunar fyrir þennan aldurshóp en upphaflegt markaðsleyfi bóluefnis Pfizer byggði á notkun fyrir sextán ára og eldri. Í lok maí á þessu ári samþykkti Lyfjastofnun Evrópu síðan notkun þess fyrir 12 til 15 ára börn, að undangenginni rannsókn sem náði til 2.260 barna. Reyndist vörnin í bólusetta hópnum vera 100%, þar sem ekkert bólusettu barnanna fékk Covid-19 samanborið við sextán börn (af 978) í samanburðarhóp rannsóknarinnar sem fengu lyfleysu. Mæla með bólusetningu fyrir alla yfir 12 ára aldri Fram kemur á Covid.is, upplýsingavef embættis landlæknis og almannavarna, að rannsóknir hafi sýnt að það sé öruggara að fá bólusetningu heldur en Covid-19, bæði fyrir börn og fullorðna. Alvarleg veikindi eða langtímaáhrif eftir Covid-19 veikindi séu líklegri fyrir alla sem megi fá bólusetningu heldur en alvarlegar aukaverkanir eftir bólusetningu. Þess vegna mæli heilbrigðisyfirvöld með bólusetningu fyrir alla 12 ára og eldri. Algengustu aukaverkanir bólusetningar gegn Covid-19 eru sagðar vera óþægindi í handlegg, hiti, bein- og vöðvaverkir og þreyta í einn eða tvo daga. Að sögn heilbrigðisyfirvalda eru sjaldgæfari aukaverkanir eftir bóluefni Pfizer bólgur í poka í kringum hjartað sem er kallað gollurshús eða enn sjaldnar í hjartanu sjálfu. Þessar aukaverkanir komi frekar eftir bólusetningu hjá ungu fólki heldur en gömlu, hjá drengjum frekar en stúlkum og gerist oftast þremur til fjórum dögum eftir seinni skammtinn. „Þá getur komið skrítinn hjartsláttur, verkur í brjóstið, hraður andardráttur eða verið óþægilegt að anda djúpt. Þótt þessar aukaverkanir geti verið óþægilegar og jafnvel ógnvekjandi, þá jafna flestir sig alveg með hvíld og bólgueyðandi verkjalyfjum. Það getur tekið nokkrar vikur að jafna sig,“ segir á Covid.is. Fram kom í matsferli sérfræðinefndar Lyfjastofnunar Evrópu að slík hjartavöðvabólga og gollurhúsbólga væri afar sjaldgæf.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Reykjavík Tengdar fréttir Veiran varð nær 30-falt útbreiddari hjá börnum Heilbrigðisráðherra vonast til að geta slakað til í samkomutakmörkunum á næstu tveimur vikum en breytir engu að sinni. Bólusetning barna fimm til ellefu ára gæti slegið á útbreiðslu faraldursins í heild, að sögn barnalæknis. 7. desember 2021 19:46 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Sjá meira
Veiran varð nær 30-falt útbreiddari hjá börnum Heilbrigðisráðherra vonast til að geta slakað til í samkomutakmörkunum á næstu tveimur vikum en breytir engu að sinni. Bólusetning barna fimm til ellefu ára gæti slegið á útbreiðslu faraldursins í heild, að sögn barnalæknis. 7. desember 2021 19:46