„Aðal bikarinn er eftir og við stefnum á að halda honum heima“ Andri Már Eggertsson skrifar 24. mars 2023 22:45 Kristófer Acox var frábær í sigri Vals gegn Njarðvík Vísir/Hulda Margrét Valur valtaði yfir Njarðvík í Ljónagryfjunni 76-101. Valur tryggði sér deildarmeistaratitilinn og Kristófer Acox, leikmaður Vals, var ánægður með sigurinn. „
Við vissum af því að með sigri myndum við tryggja okkur deildarmeistaratitilinn en við vorum ekkert að missa okkur yfir því. Við komum inn í þennan leik og ætluðum að spila eins og við hefðum engu að tapa,“ sagði Kristófer Acox og hélt áfram. „Auðvitað er þetta mikill heiður og alltaf gaman að vinna en aðal bikarinn er eftir og við stefnum á að halda honum heima. Við fáum heimavöllinn út úrslitakeppnina og við vitum að það er mikilvægt.“ Kristófer var ánægður með þá staðreynd að hafa landað eina titlinum sem hann átti eftir að vinna sem leikmaður Vals. „Við erum í þessu til að vinna og við viljum vinna allt sem er í boði. Núna erum við komnir með alla bikarana í hús en auðvitað er nýtt og annað mót sem er eftir. Það er mikill körfubolti sem er eftir að spila og við vitum að það verður ekki auðvelt. Við munum hugsa um okkur og reyna vera betri og mér fannst við taka stórt skref í kvöld.“ Kristófer Acox og Maciek Baginski áttu í orðaskiptum í seinni hálfleik. Skömmu síðar tróð Kristófer yfir hann. Kristófer var léttur í svörum og sagðist hafa skotið á hann vegna auglýsingu sem Maciek lék í. „Ég og Maciek Baginski erum góðir félagar og erum búnir að þekkjast lengi og ég var aðeins að skjóta á hann með Sjóvá auglýsingarnar. Það hefur verið stríð milli mín og hans á auglýsingaskiltum út í bæ. Maður sá hann allt í einu á skjánum að taka minn tíma og ég lét hann aðeins heyra það,“ sagði Kristófer Acox í góðu glensi.
Valur Subway-deild karla Mest lesið „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Handbolti Garnacho búinn að biðjast afsökunar Enski boltinn Fylgist með þessum í Bestu deildinni í sumar Íslenski boltinn Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Enski boltinn „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ Íslenski boltinn Fyrrverandi hirti fernu-boltann Enski boltinn „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Sú Besta, stórleikur á Englandi, úrslitakeppni NBA og margt fleira Sport Guardiola: Palmer bað um að fá að fara í tvö ár Enski boltinn „Voru greinilega ósáttir við þessa hlaupandi konu“ Sport Fleiri fréttir Selma Sól skoraði beint úr horni Chelsea vann á heimavelli Evrópumeistaranna Verstappen átján sætum á undan Hamilton á ráspólnum á morgun Í beinni: HK - FH | HK-ingar í sárum Endurheimtu Hafrúnu en töpuðu stigum í titilbaráttunni Góður laugardagur fyrir Ísak, Þóri og Stefán Guardiola: Palmer bað um að fá að fara í tvö ár „Þá prófaði ég það í fyrsta skipti“ Besta-spáin 2024: Drottningar Norðursins til alls líklegar Eftir 376 leiki með KR mætir Rúnar KR í fyrsta sinn á Íslandsmóti „Voru greinilega ósáttir við þessa hlaupandi konu“ Sjáðu snilldarsnúning Hilmars Árna sem ruglaði Valsmenn í ríminu Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ Besta-spáin 2024: Fiðringur í Firðinum Fyrrverandi hirti fernu-boltann „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Miami og New Orleans síðustu liðin inn: Svona lítur úrslitakeppni NBA út Fylgist með þessum í Bestu deildinni í sumar Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Dagskráin í dag: Sú Besta, stórleikur á Englandi, úrslitakeppni NBA og margt fleira Garnacho búinn að biðjast afsökunar Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ „Við treystum á Remy og guð í kvöld“ „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ „Særð dýr eru hættulegustu dýrin“ ÍA kynnir Rúnar Má til leiks Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Álftanes 88-84 | Keflvíkingar tóku forystuna í hörkuleik „Fínt að enda þetta þannig að fólk fái eitthvað fyrir peninginn“ Sjá meira