Átök halda áfram í Nagorno-Karabakh Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 25. október 2020 20:27 Aserskar björgunarsveitir reyna að bjarga fólki undan rústum húss sem var sprengt í átökunum. EPA-EFE/AZIZ KARIMOV
Átök brutust út á milli hersveita Aserbaídsjan og Armena sem búsettir eru í Nagorno-Karabakh um helgina. Aserar og Armenar hafa báðir kennt hinni hliðinni um að hafa komið í veg fyrir friðsamlegar málalyktir í átökunum um héraðið. Armenar ásökuðu Asera í dag um að hafa sprengt upp bæi í héraðinu en Aserar hafa harðneitað og sast tilbúnir til að koma á vopnahléi. Það sé þó bundið því skilyrði að armenskar hersveitir yfirgefi vígvelli. Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna boðaði utanríkisráðherra Armeníu og Aserbaídsjan á fund á föstudag í von um að koma á vopnahléi. Átökin í héraðinu, sem er hluti af Aserbaídsjan en meginþorri íbúa af armensku bergi brotnu, héldu þó áfram um helgina þrátt fyrir tilraunir til vopnahlés. Þegar hafa tvö vopnahlé, sem komið var á fyrir tilstilli Rússa, verið brotin frá því að átökin um héraðið hófust þann 27. september síðastliðinn. Átök um héraðið hafa ekki verið jafn slæm í um 26 ár, eða frá því að sex ára stríði um héraðið lauk árið 1994. Um 30 þúsund manns létust í stríðinu um héraðið. Alþjóðasamfélagið hefur lýst yfir áhyggjum vegna ástandsins í Nagorno-Karabakh og vill koma í veg fyrir að fleiri lönd dragist inn í deilurnar að því er segir í frétt Reuters. Tyrkir hafa lýst yfir stuðningi við Aserbaídsjan en Rússland á í varnarbandalagi við Armeníu. Pompeo sakað yfirvöld í Tyrklandi um að ýta undir átökin með því að senda Aserum vopn en því hafa Tyrkir staðfastlega neitað. Þá hefur Vladimír Pútín Rússlandsforseti biðlað til Bandaríkjanna að hjálpa yfirvöldum í Moskvu að stilla til friðar. Óljóst er hve margir hafa látist í átökunum en Pútín greindi frá því í liðinni viku að nærri fimm þúsund hafi látist í átökunum, rúmlega 2.000 frá hvorri stríðandi fylkinga. Varnarmálaráðuneytið í Nagorno-Karabakh greindi hins vegar frá því í gær að 963 Armenar hafi látist í átökunum. Asersk yfirvöld hafa ekki gefið út hve margir hermanna þeirra hafi látist en að 65 aserskir borgarar hafi verið drepnir og 298 særst.
Armenía Aserbaídsjan Bandaríkin Rússland Tyrkland Nagorno-Karabakh Hernaður Tengdar fréttir Pútín segir tæplega 5.000 hafa dáið í Nagorno-Karabakh Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að nærri fimm þúsund manns hafi látist í átökum Aserbaídsjan og Armeníu um héraðið Nagorno-Karabakh. 22. október 2020 21:14 Vopnahlé brotið nokkrum mínútum eftir að það tók gildi Aserar og Armenar saka hvern annan um brot á vopnahléi sem átti að taka gildi á miðnætti í gærkvöldi. 18. október 2020 13:38 Armenía og Aserbaídsjan semja um vopnahlé Armenía og Aserbaídsjan hafa samið um vopnahlé í deilunum um héraðið Nagorno-Karabakh. 17. október 2020 21:46 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svandís boðar til blaðamannafundar Innlent „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Erlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Fleiri fréttir Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Sjá meira
Pútín segir tæplega 5.000 hafa dáið í Nagorno-Karabakh Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að nærri fimm þúsund manns hafi látist í átökum Aserbaídsjan og Armeníu um héraðið Nagorno-Karabakh. 22. október 2020 21:14
Vopnahlé brotið nokkrum mínútum eftir að það tók gildi Aserar og Armenar saka hvern annan um brot á vopnahléi sem átti að taka gildi á miðnætti í gærkvöldi. 18. október 2020 13:38
Armenía og Aserbaídsjan semja um vopnahlé Armenía og Aserbaídsjan hafa samið um vopnahlé í deilunum um héraðið Nagorno-Karabakh. 17. október 2020 21:46