Risaskipti í NBA-deildinni í körfubolta í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2020 12:31 Russell Westbrook og John Wall í leik á móti hverjum öðrum en Westbrook mætti Wall aldrei sem leikmaður Houston Rockets. Getty/Torrey Purvey Stjörnuleikmennirnir Russell Westbrook og John Wall eru komnir í ný félög í NBA-deildinni í körfubolta eftir athyglisverð leikmannaskipti í gær.
Washington Wizards og Houston Rockets hafa ákveðið að skipta á tveimur af sínum stærstu stjörnum en skiptin hafa verið að malla á bak tjöldin undanfarnar vikur. Washington Wizards sendir John Wall og varðan valrétt í nýliðavalinu 2023 til Houston Rockets í skiptum fyrir Russell Westbrook. Russell Westbrook náði þar með aðeins einu tímabili með Houston Rockets en hann kom til liðsins frá Oklahoma City Thunder í öðrum risaskiptum í júlí í fyrra. Viðræður voru í gangi í síðasta mánuði en ekkert hafði gerst síðan um miðjan nóvember. Allt fór hins vegar skyndilega á flug í gær og framkvæmdastjórarnir gengu frá skiptunum á nokkrum klukkutímum. BREAKING: The Houston Rockets have traded Russell Westbrook for John Wall and a first round pick!Posted by Basketball Forever on Miðvikudagur, 2. desember 2020 Báðir leikmennirnir vildu líka komast í burtu frá sínum liðum. Russell Westbrook var ekki sáttur eftir eitt ár hjá Houston Rockets og John Wall hefur lítið sem ekkert spilað með Washington Wizards í tvö ár vegna meiðsla. Westbrook var með 27,2 stig, 7,9 fráköst og 7,0 stoðsendingar að meðaltali í leik á eina tímabilinu sínu með Houston Rockets en það var fyrsta tímabilið hans frá 2015-16 þar sem hann var ekki mðe þrennu að meðaltali í leik. John Wall missti af öllu síðasta tímabili og spilaði bara samtals 73 leiki á tveimur tímabilum þar á undan. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning árið 2017 sem skilaði honum 170 milljónum dollurum. Þann samning fékk Wall eftir tímabil með 23,1 stig og 10,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Síðan þá hefur ferill Wall verið á hraðri niðurleið og nánast líflaus eftir að hann sleit hásin þegar hann datt heima hjá sér í febrúar 2019. John Wall er enn bara þrítugur og reynir nú að endurvekja feril sinn hjá Houston Rockets. ESPN story on the Russell Westbrook-John Wall trade: https://t.co/oiMEO0yvFw— Adrian Wojnarowski (@wojespn) December 3, 2020
NBA Mest lesið Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin Íslenski boltinn „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Íslenski boltinn Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Íslenski boltinn „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Enski boltinn Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Fótbolti Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Enski boltinn Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Enski boltinn Kolli í titilbardaga sem gæti valdið vatnaskilum Sport Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Fleiri fréttir Kosinn nýliði ársins með fullu húsi Riley sagði Butler að halda kjafti og lofaði honum ekki nýjum samningi Brunson í fámennan klúbb og Knicks veittu fyrsta höggið „Ótrúlega stoltur að klára mjög sterkt og vel mannað Grindavíkurlið“ „Það er þjálfarinn sem á að stíga upp og finna betri lausnir“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 69-82 | Njarðvík í úrslit Þjálfari Luka og Kyrie framlengir „BLE-bræður eru brjálaðir!“ Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins „Ef maður fær opin skot þá verður maður að taka þau“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 87-78 | Heimakonur einum sigri frá úrslitum Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Helena fær sæti í Heiðurshöll TCU skólans Bara þrjú af tíu líklegustu NBA-liðunum komust í aðra umferð Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum NBA meistararnir réðu ekki við hinn magnaða Anthony Edwards „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Tryggvi Snær kom inn af bekknum í tapi gegn botnliðinu „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli „Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“ „Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 69-78 | Deildarmeistararnir læstu vörninni Sjá meira