Segir veitingaaðilum létt með óbreyttum reglum og styrkjum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. janúar 2022 14:18 Jóhannes Þór Skúlason er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Vilhelm Reglur hvað varða veitingastaði hér á landi eru nokkurn veginn óbreyttar. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir þetta mikinn létti fyrir veitingahúsaeigendur og hótelrekendur sem hafi verið farnir að reikna með enn harðarði takmörkunum.
Tíu mega koma saman í stað tuttugu frá miðnætti. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti hertar takmarkanir fyrir utan ráðherrabústaðinn í dag. Nýjar takmarkanir gilda til 2. febrúar. Viðburðir sem byggja á hraðprófum verða ekki lengur heimilaðir. Skemmtistöðum, börum og spilasölum verður gert að loka. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, staðgengill fjármálaráðherra, tilkynnti einnig að ráðist yrði í efnahagsaðgerðir til þess að bæta tekjufall. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði þrjár leiðir til í minnisblaði sínu. Í þeirri leið sem ríkisstjórnin segist hafa farið eftir að mestu leyti lagði Þórólfur til að minnka hólfin á veitingastöðum í tíu manns úr tuttugu. Ríkisstjórnin féllst ekki á þetta. Allt verður óbreytt á veitingastöðum. Tuttugu í hólfi, má hleypa inn til 21 og allir komnir út fyrir klukkan 22. „Þetta er heldur skárra en það sýndist í upphafi fyrir veitingarekstur. Tíu manns er mjög erfitt. Ég heyrði strax af veitingamönnum sem höfðu í hyggju að loka,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Veitingastaðir og hótel geta því haldið áfram uppteknum hætti. „Þetta gerir þeim auðveldara að halda áfram með skynsamlegum hætt með þessum reglum.“ Nýjar reglur herði þó að starfsemi í ferðamennskunni. Þeir sem eru með hópa sem vilja komast í afþreyingu, hvalaskoðun, vélsleðaferðir og annað þurfi að minnka hópana. „Þetta þrengir að á ýmsan máta.“ Jóhannes fagnar því að ríkisstjórnin ætli að mæta aðilum í bransanum með úrræðum. „Koma til móts við þetta mikla og langvarandi tekjufall sem sóttvarnaaðgerðir eru að valda veitingastöðunum,“ segir Jóhannes. Hann vonar að horft verði til fyrri styrkveitinga í faraldrinum við útfærslu styrkjanna. Þórdís Kolbrún sagði reglugerð um styrki í smíðum í ráðuneytinu og aðgerðirnar yrðu ræddar á Alþingi á mánudag. Tengd skjöl Minnisblad13012022PDF339KBSækja skjal
Veitingastaðir Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Mun algengara að konan sé heima með börnin verði skólum lokað Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að það sé bæði prinsipp- og jafnréttismál, að halda skólum opnum eins og hægt er, í gegnum kórónuveirufaraldurinn. 14. janúar 2022 13:08 Tíu mega koma saman Sóttvarnaraðgerðir verða hertar og taka þær gildi á miðnætti. Heilbrigðisráðherra segir að sóttvarnalæknir hafi lagt fram þrjár leiðir: Óbreyttar aðgerðir, færa samkomutakmarkanir úr tuttugu manns í tíu, eða lokun á samfélaginu í tíu daga. Ríkisstjórnin hafi valið leið tvö. 14. janúar 2022 12:03 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Sjá meira
Mun algengara að konan sé heima með börnin verði skólum lokað Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að það sé bæði prinsipp- og jafnréttismál, að halda skólum opnum eins og hægt er, í gegnum kórónuveirufaraldurinn. 14. janúar 2022 13:08
Tíu mega koma saman Sóttvarnaraðgerðir verða hertar og taka þær gildi á miðnætti. Heilbrigðisráðherra segir að sóttvarnalæknir hafi lagt fram þrjár leiðir: Óbreyttar aðgerðir, færa samkomutakmarkanir úr tuttugu manns í tíu, eða lokun á samfélaginu í tíu daga. Ríkisstjórnin hafi valið leið tvö. 14. janúar 2022 12:03