Smyglaði myndefni til AP í túrtappa og hvarf skömmu síðar Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2022 14:23 Yuliia Paievska er uppgjafarhermaður og bráðatæknir. Hún keppti einnig á Invictus-leikunum árið 2018 í bogfimi og sundi. Þessi mynd var tekin það ár. AP/Invictus-lið Úkraínu Úkraínskur bráðatæknir í sjálfboðastarfi í fangaði störf sín í Maríupól á mynd og kom efninu til blaðamanna AP fréttaveitunnar á minniskorti sem hún faldi í túrtappa. Degi síðar var hún handsömuð af Rússum og ranglega sökuð um að tilheyra Azov-herdeildinni.
Yuliia Paievska, sem gengur undir nafninu Taira, gekk um með myndavél í um tvær vikur í mars og fangaði hið hræðilega ástand í borginni. Myndefni hennar sýnir hana fara um borgina og reyna að bjarga lífi fólks og flytja það á sjúkrahús. Myndefninu kom hún til áðurnefndra blaðamanna AP skömmu áður en þeir fóru frá Maríupól. Þeir voru síðustu vestrænu blaðamennirnir í borginni. Fylgjast má með nýjustu vendingum í Úkraínu hér í Vaktinni á Vísi. Eitt myndband frá tíunda mars sýnir hana taka á móti tveimur rússneskum hermönnum sem voru særðir. Aðspurð hvort hún ætlaði að hlúa að þeim sagði hún: „Þeir yrðu ekki svo góðir við okkur en ég get ekki annað. Þeir eru stríðsfangar.“ Taira hlúði jafnt að særðum rússneskum hermönnum og úkraínskum.AP/Yuliia Paievska Eftir að hún var handsömuð sökuðu Rússar hana um að vera í Azov-herdeildinni, sem Rússar segja nasista, en það segir AP fréttaveitan ekki vera rétt. Hún hafi engin tengsl við herdeildina. Ríkisstjórn Úkraínu segist hafa reynt að fá Tairu bætt á lista fyrir fangaskipti en að Rússar segist ekki vera með hana í haldi. Það er þrátt fyrir að hún hafi sést í sjónvarpsútsendingum rússneskra fjölmiðla, með bundnar hendur og marin í andliti. Það var 21. mars en síðan þá hefur engin séð til hennar. Rússar eru sakaðir um að hafa handsamað og jafnvel rænt hundruðum manna og kvenna í Úkraínu. Mörg þeirra hafa verið pyntuð og myrt. Sameinuðu þjóðirnar segja að nýverið hafi rússneskir hermenn fjarlægt konu úr bílalest frá Maríupól og sakað hana um að vera bráðatækni í hernum. Hún var handsömuð en ung dóttir hennar þurfti að fara ein í bílalestinni, samkvæmt starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna. Frétt AP og hluta af myndefni Tairu má sjá í myndbandinu hér að neðan. Vert er að vara áhorfendur við því að myndefnið getur vakið óhug.
Úkraína Rússland Hernaður Innrás Rússa í Úkraínu Mannréttindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Fleiri fréttir Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Sjá meira